Sandra Lind taplaus á toppnum

Sandra Lind Þrastardóttir trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta …
Sandra Lind Þrastardóttir trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta kvenna. mbl.is/Styrmir Kári

Hørsholm, lið Söndru Lindar Þrastardóttur, landsliðskonu í körfubolta, vann sannfærandi 84:56-sigur þegar liðið mætti Stevnsgade í toppslag í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta kvenna í dag.

Sandra Lind komst ekki á blað í stigaskorun Hørsholm í þessum leik, en hún tók hins vegar sex fráköst og gaf þar að auki tvær stoðsendingar. 

Hørsholm trónir á toppi deildarinnar, en liðið er taplaust eftir fyrstu fjórar umferðir deildarinnar og hefur tveggja stiga forskot á Stevnsgade sem er í öðru sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert