Ágúst leikur með Djúpmönnum

Ágúst Angantýsson
Ágúst Angantýsson mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Framherjinn Ágúst Angantýsson er genginn í raðir Vestra á ný og mun leika með liðinu í 1. deildinni í körfuknattleik í vetur.

Ágúst er frá Þingeyri og lék með KFÍ tímabilið 2013-2014. Hann var um tíma hjá KR og varð bikarmeistari með Stjörnunni árið 2015.

Ágúst lék 25 leiki með Stjörnunni á síðasta tímabili og skoraði tæp sex stig að meðaltali og tók að jafnaði tæp fjögur fráköst í leik.

Tilkynning Vestra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert