Vináttuleikur til stuðnings Bjarka

Bjarki Gylfason lék með báðum liðum.
Bjarki Gylfason lék með báðum liðum. Ljósmynd/Þór og Álftanes

Körfuknattleiksdeildir Þórs frá Þorlákshöfn og Ungmennafélags Álftaness hafa ákveðið að efna til vináttuleiks til stuðnings fyrrverandi leikmanns beggja liða, Bjarka Gylfasonar.

Bjarki hefur glímt við krabbamein undanfarið rúmt ár með tilheyrandi kostnaði.

„Leikmenn og vinir í báðum félögum hafa ákveðið að efna til vináttukörfuknattleiks til styrktar Bjarka og fjölskyldu. Leikurinn verður haldinn í maí og mun allur ágóði renna til fjölskyldunnar.

Gamlar kempur og vinir Bjarka munu stíga á parketið og rifja upp gamla takta,“ segir meðal annars í tilkynningu frá félögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert