Hættir hjá Stjörnunni

Arnar Guðjónsson.
Arnar Guðjónsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnar Guðjónsson hættir störfum sem þjálfari karla- og kvennaliða Stjörnunnar í körfuknattleik að þessu keppnistímabili loknu.

Stjarnan tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum í dag og þakkaði honum fyrir vel unnin störf.

Arnar hefur þjálfað karlalið Stjörnunnar frá árinu 2018 og liðið hefur þrisvar orðið bikarmeistari og tvisvar deildarmeistari undir hans stjórn.

Hann hefur síðan einnig þjálfað kvennaliðið sem vann 1. deildina undir hans stjórn í fyrra og er nú í efri hluta úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert