Þegar Dorrit veifaði

Þjóðverjar þurftu að bíta í það súra epli að falla út úr handboltakeppni ólympíuleikanna í Peking. Þýskir fjölmiðlar hafa þó fjallað um árangur Íslendinga í keppninni, þar á meðal blaðið Süddeutsche Zeitung, sem birtir stóra mynd af Dorrit Moussaieff fagna sigri Íslendinga á Pólverjum á miðvikudag. Fyrirsögnin er Þegar Dorrit veifaði. Minnt er á að leikur Íslendinga og Spánverja í undanúrslitum keppninnar hefst klukkan 12:15.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert