Margrét sigraði (myndskeið)

Margrét Jóhannsdóttir er komin í 8 manna úrslit í einliðaleik kvenna á badmintonmóti Reykjavíkurleikanna sem fram fer í TBR húsinu um helgina. Margrét sigraði í 16 manna úrslitum dönsku stúkuna Amalie Hertz Hansen. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá hluta úr æsispennandi viðureign þeirra en spila þurfti oddalotu til að knýja fram úrslit þar sem Margrét sigraði 21-16.

Margrét er eini Íslendingurinn sem er komin í 8 manna úrslit í einliðaleik því Kári Gunnarsson sem einnig átti möguleika á að komast þangað tapaði fyrir Portúgalanum Pedro Martins fyrr í kvöld. Keppni í tvíliða- og tvenndarleik stendur yfir til kl.21:30 í kvöld.  Hægt er að fylgjast með gangi mála hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert