Björgvin sigraði í ólympískum lyftingum

Verðlaunahafar í ólympískum lyftingum. Björgvin Karl í 1. sæti, Jere …
Verðlaunahafar í ólympískum lyftingum. Björgvin Karl í 1. sæti, Jere Johansson í 2. sæti og Daníel Róbertsson í 3. sæti. LSÍ

Töluverðar sviptingar urðu í karlakeppni WOW Reykjavik International Games í ólympískum lyftingum í dag. Keppt var í svokallaðri Sinclair-stigakeppni þar sem líkamsþyngd keppenda og heildarþyngd sem þeir lyfta reiknast upp í ákveðinn stigafjölda. Björgvin Karl Guðmundsson (Hengli) stóð uppi sem sigurvegari dagsins eftir frábæra frammistöðu þar sem hann setti fimm Íslandsmet.

Í snörun var það áðurnefndur Björgvin sem dró vagninn fyrir íslensku keppendurna en hann var í harðri keppni við hin finnska Jere Johansson eftir að lyftingamaður ársins 2016, Andri Gunnarsson (LFG), þurfti að hætta við keppni sökum flensu. Björgvin snaraði 115 kg, 120 kg og loks 128 kg sem er nýtt Íslandsmet. Sá finnski snaraði 117 kg, 121 kg og 124 kg en hann vigtaðist 4 kg léttari en Björgvin og því var mjótt á munum í stigakeppninni. Einar Ingi Jónsson (LFR), næststigahæsti íslenski lyftingamaðurinn, fór illa að ráði sínu og datt úr leik í snörun þegar hann klikkaði þrisvar sinnum á opnunarþyngdinni 110 kg. Svíinn Stefan Ågren lyfti 151 kg í fyrstu tilraun í -105 kg flokki en klikkaði síðan tvisvar sinnum á 157 kg. Það dugði honum þó til að leiða keppnina að snörun lokinni. Daníel Róbertsson (Ármann) átti góðan dag og bætti sig um 7 kg þegar hann snaraði 120 kg en hann vigtaðist um 80 kg, tæpu 1 kg léttari en Finninn Jere.

Í jafnhendingunni opnaði Björgvin Karl á 140 kg og Finninn á 145 kg. Því næst lyfti Björgvin 151 kg sem var bæting á hans eigin Íslandsmeti um 1 kg. Jere Johansson lyfti þá 153 kg og var kominn í forskot og Björgvin þurfti því að lyfta 157 kg til að hafa betur gegn Jere sem hann og gerði. Svíinn Agren var síðastur til að hefja keppni og opnaði hann í 192 kg en hann hafði stefnt að því að lyfta 201 kg sem hefði verið nýtt sænskt met í þeim þyngdarflokki. 192 kg voru of þung opnun fyrir Svíann og hann féll úr leik eftir þrjár tilraunir. Björgvin stóð því uppi sem sigurvegari og var vel að því kominn eftir að hafa sett fimm Íslandsmet og lyft öllum sínum lyftum.

  1. Björgvin Karl Guðmundsson (Lyftingafélagið Hengill) – líkamsþyngd: 84,65 kg
    Snörun: 128 kg – Jafnhending: 157 kg – Samanlagður árangur: 285 kg – Sinclair: 341,3 stig
  2. Jere Johansson (Finnland) – líkamsþyngd: 81,10 kg
    Snörun: 124 kg – Jafnhendingu: 153 kg – Samanlagður árangur: 277 kg – Sinclair: 339,1 stig
  3. Daníel Róbertsson (Ármann) – líkamsþyngd: 79,95
    Snörun: 120 kg – Jafnhending: 135 kg – Samanlagður árangur: 255 kg – Sinclair: 314,5 stig

Nánari úrslit frá mótinu má finna í gagnagrunni Lyftingasambandsins: http://results.lsi.is/meet/rig-2017-2017

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert