Íslandsmet Björgvins (myndskeið)

Björgvin Karl Guðmundsson setti fimm Íslandsmet og stóð uppi sem sigurvegari í ólympískum lyftingum á WOW Reykjavik International Games í dag. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá hann taka 157 kg í jafnhendingu sem er Íslandsmet. Hann hafði áður lyft 128 kg í snörun og tryggði jafnhendingin honum því jafnframt Íslandsmet í samanlögðu, 285 kg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert