Stóru skólarnir betri en þeir litlu

Oft hefur verið um það deilt hvort betra sé fyrir börn og unglinga að ganga í lítinn skóla eða stóran en danski prófessorinn Niels Egelund er ekki í vafa. Stóru skólarnir eru betri, sérstaklega þegar kemur að stærðfræði og raunar einnig varðandi lestur.

Egelund, sem starfar við Danmarks Pædagogiske Universitet, hefur kynnt sér vel niðurstöður PISA-rannsóknarinnar frá 2003 um menntun og frammistöðu nemenda og segir, að þær sýni augljósa fylgni með stórum skólum og góðri frammistöðu. Kom þetta fram á fréttavef Berlingske Tidende í gær.

Egelund getur sér til, að ein af ástæðunum fyrir þessu sé sú, að í stórum skólum eigi kennarar sér alltaf einhverja kollega í faginu. Þeir styðji síðan hver annan með ýmsum hætti og beinu samstarfi. Hann leggur þá áherslu á, að í öllu námi skipti félagslegar aðstæður oft mestu.

Ekki er ólíklegt, að niðurstöðum Egelunds verði tekið fagnandi hjá mörgum stórum sveitarfélögum í Danmörku en hjá þeim eru uppi tillögur um að spara með því að leggja niður allt að 300 smáskóla á næstu árum. Egelund segist þó ekki kæra sig um, að álit hans verði notað sem röksemd í sparnaðarhugleiðingum sveitarfélaganna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert