Það er nánast alveg sama hversu vindasamur, blautur eða kaldur dagur blasir við stírubólgnum augum landsmanna þegar þau gægjast út um gluggann sinn að morgni - hjá sjómönnum er alltaf hvassara og kaldara.
Það kemur þó ekki í veg fyrir að menn haldi á miðin og hali inn það sem þjóðin þarf til að halda uppi merkjum sínum sem velferðarsamfélag. Eins fram kom í máli Trausta Egilssonar, skipstjóra til 50 ára, vinna sjómenn alla daga, alltaf. Má þá einu gilda hvort fyrsti snjór vetrarins fölvi dekkið eða Kári blási í trýnið á mönnum og undir svitastorkna hjálmana - þeir vinna samt. Og á sjónum er alltaf blautt, alltaf kalt og alltaf hvasst, því þeir róa á Íslandsmiðum.
Hollráð dagsins, nú þegar landsmenn böðlast við að komast upp Ártúnsbrekkuna með blauta fætur, á sumardekkjum sem virðast ekki ætla að hafa verkið af og harma þau örlög sín að þurfa að búa við svona svartamyrkur, kulda og slyddu, er því þetta: Horfðu á myndbandið sem fylgir þessari frétt (sem þessi maður tók), lestu ylvolgan Moggann með heitan kaffibolla í hönd, njóttu svo dagsins og þakkaðu fyrir að þessir menn standi vaktina í aðstæðum sem fæstir einfaldlega gætu, svo þú þurfir ekki að gera það. Því ef þeirra nyti ekki við væri öðruvísi umhorfs á Íslandinu góða.
Sérstaklega er þó mælt með áhorfi frá og með mínútu 1:44.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 326 kg |
Ýsa | 66 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 439 kg |
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.934 kg |
Þorskur | 146 kg |
Ýsa | 42 kg |
Skarkoli | 30 kg |
Ufsi | 20 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Rauðmagi | 1 kg |
Samtals | 2.178 kg |
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.040 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 2.108 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 326 kg |
Ýsa | 66 kg |
Skarkoli | 47 kg |
Samtals | 439 kg |
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.934 kg |
Þorskur | 146 kg |
Ýsa | 42 kg |
Skarkoli | 30 kg |
Ufsi | 20 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Rauðmagi | 1 kg |
Samtals | 2.178 kg |
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.040 kg |
Þorskur | 49 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Ýsa | 3 kg |
Samtals | 2.108 kg |