Rufu fjölmiðlabannið

Verkfall sjómanna hefur staðið vikum saman. Deilan er í algjörum …
Verkfall sjómanna hefur staðið vikum saman. Deilan er í algjörum hnút og fór ríkissáttasemjari fram á að deiluaðilar tjáðu sig ekki efnislega um málið í fjölmiðlum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Þar sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hafa rofið fjölmiðlabann sem sett var á að beiðni ríkissáttasemjara telur formaður Verkalýðsfélags Akraness mikilvægt að sjómenn fái upplýsingar um bókun sem lögð var fram á sáttafundi deiluaðila í gær. Fundurinn var árangurslaus. SFS sendu félagsmönnum sínum fréttabréf eftir fundinn þar sem fram kom að sjómannasamtökin hefðu komið með nýja „kröfu“ inn í deiluna. 

Upplýsir formaðurinn Vilhjálmur Birgisson í pistli á vef verkalýðsfélagsins í hverju bókunin, sem SFS kalla kröfu, felst. 

Í pistlinum segir að bókunin hafi snúist um að samningsaðilar yrðu sammála um að leitað yrði skýringa á því hvers vegna erlend uppsjávarskip sem landa makríl, síld og loðnu, t.d. í Noregi, virðast ætíð fá hærra fiskverð en greitt er til íslenskra sjómanna.

Bókunin laut líka, að því er fram kemur í pistli formannsins, að því að samningsaðilar væru sammála um mikilvægi þess að skipa fjögurra manna óháða nefnd sem hefur það hlutverk að rannsaka í hverju mismunurinn á verði á makríl, síld og loðnu hér og í Noregi liggur.

Þá laut hún líka að því að samningsaðilar væru sammála um að eyða þurfi þeirri tortryggni og vantrausti sem ríkt hefur um verðmyndun á uppsjávarafla og væri þessi fjögurra manna óháða nefnd einn liður í þeirri vinnu.

„Þetta er nú þessi svakalega „krafa“ sem samtök fyrirtækja í sjávarútvegi skilja bara ekkert í og segja í fréttabréfi til sinna félagsmanna að þessi bókun sjómannasamtakanna sýni í verki algert viljaleysi til að ná farsælli lendingu í kjaraviðræðum sem eru á viðkvæmu stigi,“ segir í pistlinum. 

Ofsafengin viðbrögð

Svo segir: „Þessi bókun um að skipa fjögurra manna óháða rannsóknarnefnd er liður í að eyða því vantrausti og tortryggni sem ríkt hefur um áratugaskeið um verðmyndun á uppsjávarafla til íslenskra sjómanna. Hvernig í ósköpunum stendur á þessum ofsafengnu viðbrögðum frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi í ljósi þess að útgerðarmenn segja að verðmyndun á uppsjávarafla sé í alla staði eðlileg og þeir hafi ekkert að fela?

Ef svo er þá ætti að vera afar auðvelt fyrir útgerðarmenn að samþykkja þessa bókun sem er einungis liður í að eyða vantrausti og tortryggni við verðmyndun á uppsjávarafla.  Við í sjómannaforystunni spyrjum okkur að sjálfsögðu að því hví í ósköpunum eru útgerðarmenn á móti þessari bókun í ljósi þess að útgerðin segir að ekkert sé við verðlagningu á uppsjávarafla að athuga?  Er kannski eitthvað við verðlagningu á uppsjávarafla að athuga sem ekki getur litið dagsins ljós? Að sjálfsögðu velta sjómenn því fyrir sér í ljósi þessara viðbragða.

Formaður VLFA vil koma því skýrt á framfæri að það stóð aldrei til að hunsa fyrirmæli um fjölmiðlabann frá ríkissáttasemjara en í ljósi þess að SFS gerði það þá varð að upplýsa sjómenn um hverju þessi svokallaða „krafa“ laut að.

Bara þannig að því sé til haga haldið þá eru sjómenn svo sannarlega tilbúnir til að ganga frá nýjum kjarasamningi enda telja sjómenn að þær kröfur sem liggja nú fyrir útgerðamönnum séu sanngjarnar, réttlátar og hóflegar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »