Nýr viti mun rísa við Sæbraut

Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að svæðið nýtist sem áningarstaður þeirra …
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að svæðið nýtist sem áningarstaður þeirra sem þar eiga leið hjá. Tölvuteikning/Yrki arkitektar

Um tíu ár eru síðan innsiglingarvitinn í turni Sjómannaskólans við Háteigsveg hvarf nánast úr augsýn sjómanna, eftir að ýmsar turnbyggingar voru reistar við Höfðatorg.

Nú horfir til breytinga, en í bígerð er nýr viti sem staðsettur verður á landfyllingu við Sæbraut, til að tryggja örugga merkingu siglingaleiðarinnar í Gömlu höfninni og í Sundahöfn.

„Við stefnum á að smíða vitann nú í vetur,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna í samtali við mbl.is. „Það er svolítil kúnst að fá ljósin í þetta og svo þarf að ræða fráganginn á landfyllingunni við borgina.“

Vitarnir á Norðurgarði og Ingólfsgarði eru hátt í aldargamlir.
Vitarnir á Norðurgarði og Ingólfsgarði eru hátt í aldargamlir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Fá áningarstað í kaupauka

Komnar eru fram nokkrar hugmyndir um það hvernig fyrirhugaður viti eigi að líta út en ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um það hvaða útlit verður fyrir valinu. Sú ákvörðun verður þó tekin fljótlega, að sögn Ernu Kristjánsdóttur, markaðs- og gæðastjóra Faxaflóahafna.

Á tölvuteikningu Yrkis arkitekta hér að ofan hefur vitinn sama útlit og þeir sem fyrir eru á Norðurgarði og Ingólfsgarði við Reykjavíkurhöfn, en þeir eru hátt í aldargamlir.

Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að svæðið við vitann geti nýst þeim sem leið eiga um svæðið, hvort sem um sé að ræða útivistarfólk eða ferðamenn.

„Það er það sem borgin er að spá í, við erum einungis að hugsa um að koma upp vitanum,“ segir Gísli. „Borgin fær áningarstaðinn í kaupauka, en þetta verður væntanlega samstarfsverkefni okkar.“

Vitar ávallt nauðsynlegir

Frá árinu 1945 hafði vitinn í turni Sjómannaskólans þjónað hlutverki sínu sem innsiglingarviti í Reykjavíkurhöfn en eins og áður sagði hefur hann ekki getað sinnt því undanfarin ár, vegna nýbygginga í Borgartúni. 

„Hann er í raun aðeins hálfur, það er ljósgeislinn nær ekki allan hringinn út á sjó,“ segir Gísli.

Spurður hvort vitar séu enn í dag mikilvægt öryggistæki, á tíma alls kyns staðsetningartækja og -tóla, segir Gísli að svo sé.

„Auðvitað eru menn með mikið fleiri tæki en þetta er ákveðið prinsipp, að til staðar séu ljósleiðsögutæki sem vísa veginn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »