Rak fleyg milli Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks

Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, í veiðigjaldanefnd segir Þorstein Pálsson …
Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, í veiðigjaldanefnd segir Þorstein Pálsson aldrei hafa ætlað sér að skapa neina sátt um sjávarútveg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Formaður nefndar um sátt í sjávarútvegi ætlaði aldrei að skapa neina sátt um sjávarútveg, heldur ætlaði hann að reka fleyg í ríkisstjórnarsamstarf Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks. Þetta segir Páll Jóhann Pálsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni, í fréttatilkynningu sem hann sendi frá sér vegna greinagerðar Þorsteins Pálssonar formanns sáttanefndar um gjaldtöku í sjávarútvegi.

Greint var frá því fyrr í dag að starfi þver­póli­tískr­ar nefnd­ar um framtíðarfyr­ir­komu­lag gjald­töku fyr­ir af­not af fisk­veiðiauðlind­inni hef­ur verið slitið vegna þingrofs og kom­andi kosn­inga.

Með til­kynn­ing­u frá at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu um málið fylg­di grein­ar­gerð for­manns nefnd­ar­inn­ar, Þor­steins Páls­son­ar, um stöðu mála í nefnd­inni við starfsslit­in en alls hélt hún níu form­lega fundi frá 19. maí til 6. sept­em­ber.

Í grein­ar­gerð sinni sagð­ist Þor­steinn hafa ít­rekað þá skoðun sína, á síðasta fundi nefnd­ar­inn­ar, að mik­il­væg for­senda fyr­ir áfram­hald­andi leit að lausn væri samstaða um að gjald­taka skyldi miðast við tíma­bund­in af­not auðlind­ar­inn­ar.

Páll Jóhann segir í yfirlýsingu sinni hafa, ásamt fulltrúum tveggja annarra flokka, varað við að svona gæti farið og að bókun þess efnis hafi verið skráð þann 20. júní s.l.

„Það eru forkastanleg vinnubrögð af hálfu formanns nefndarinnar að slíta nefndarstarfinu án samráðs við nefndarmenn og túlka niðurstöðu nefndarinnar með þeim hætti að ekki hafi verið hægt að ná sátt um langtíma samninga. Eftir gagnaöflun og greinagerðir sérfræðinga höfðu aðeins tveir af sjö nefndarmönnum  lagt fram sínar hugmyndir formlega inn í umræðuna og því ótímabært að slíta viðræðum,“ segir í tilkynningunni.

Í nefndarstarfi sem þessu sé mikilvægt að vanda til verka og því sé það umhugsunarefni að vinnugögn nefndarinnar séu birt opinberlega áður en vinnu sé lokið.

Framsóknarflokkurinn hafi í nefndarstarfinu lagt ríka áherslu á „að treysta atvinnu og byggð í landinu og hámarka þjóðhagslegan ávinning af auðlindinni án þess að ganga ekki of nærri minni útgerðarfyrirtækjum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,95 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,29 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,42 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak Örn HU 151 Grásleppunet
Grásleppa 1.072 kg
Þorskur 94 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 1.170 kg
26.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 555 kg
Ufsi 34 kg
Karfi 12 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 610 kg
26.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.844 kg
Samtals 1.844 kg
26.4.24 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.175 kg
Þorskur 109 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.303 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,95 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 201,29 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,74 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,42 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak Örn HU 151 Grásleppunet
Grásleppa 1.072 kg
Þorskur 94 kg
Steinbítur 4 kg
Samtals 1.170 kg
26.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 555 kg
Ufsi 34 kg
Karfi 12 kg
Ýsa 9 kg
Samtals 610 kg
26.4.24 Elley EA 250 Grásleppunet
Grásleppa 1.844 kg
Samtals 1.844 kg
26.4.24 Hafey SK 10 Grásleppunet
Grásleppa 1.175 kg
Þorskur 109 kg
Rauðmagi 12 kg
Steinbítur 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 1.303 kg

Skoða allar landanir »