„Skelfilegt“ ef Orlik sykki

Lítil prýði þykir að Orlik þar sem hann liggur við …
Lítil prýði þykir að Orlik þar sem hann liggur við festar í Reykjaneshöfn en nú er vonast til þess að hægt verði að draga hann í land til þess að rífa hann sem allra fyrst. Ljósmynd/Víkurfréttir/Hilmar Bragi

„Hann flýtur enn, sýnist mér út um gluggann,“ segir Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri í Reykjaneshöfn, í samtali við mbl.is. Hann vonast til þess að í næstu viku verði unnt að koma gamla rússneska togaranum Orlik á land til að rífa hann. 

Nú er verið að undirbúa aðkomu skipsins svo það megi draga í land. Þar stendur til að rífa það og koma brotajárninu í not, selja það. Á meðan er togarinn í sívöktun, enda væri „skelfilegt“ ef hann sykki, að sögn Halldórs.

Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri í Reykjaneshöfn, vill losna við Orlik …
Halldór Karl Hermannsson, hafnarstjóri í Reykjaneshöfn, vill losna við Orlik sem fyrst. Ljósmynd/Reykjaneshöfn
þegar hún sökk þar árið 2015.

Orlik hefur legið við festar í Reykjaneshöfn í fimm ár og í fyrradag var sagt frá því að togarinn væri hálfsokkinn. Það tókst að forða því. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Halldór flókið að sigla skipum í niðurrif þar sem samþykki þurfi hjá öllum löndum sem siglt er framhjá á leiðinni.

Gísli Gíslason, formaður Hafnasambands Íslands og einnig hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir þar að það hafi sýnt sig í máli Orliks hve hægt förgun á bátum og skipum gangi hægt fyrir sig hér á landi.

Sigrún Ágústsdóttir, staðgengill forstjóra Umhverfisstofnunar, segir við Morgunblaðið að sótt hafi verið um að rífa Orlik í fjöru en því hafi verið hafnað þar sem nýlegar reglur segi til um að niðurrif skipa þurfi að fara fram í skipasmíðastöð þar sem réttur mengunarvarnarbúnaður sé til staðar. Skipasmíðastöð Njarðvíkur hafi leyfi heilbrigðiseftirlitsins fyrir 500 tonna skipi en Orlik sé mun stærra. Best hefði verið að sigla skipinu utan til niðurrifs en úr því sem komið væri hefði ráðherra fallist á að atvinnumenn í niðurrifi fengju að nota búnað Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur án þess að skipið yrði sett í rennuna að því gefnu að tryggt yrði að mengandi efni færu ekki í vatn eða jarðveg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »