Svo kom Samherji

Sighvatur Björgvinsson var framkvæmdastjóri ÞSSÍ.
Sighvatur Björgvinsson var framkvæmdastjóri ÞSSÍ.

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra og framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, var í áfalli þegar fréttastofa RÚV ræddi við hann í gærkvöldi eftir umfjöllun Kveiks um Samherjaskjölin. Öll uppbygging sem unnið hafi verið að í Namibíu hafi hrunið með komu Samherja. Hann segir málið skelfilegt og vonast til að því sé ekki lokið. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Sighvatur segir Namibíumenn ekkert hafa kunnað til sjómennsku eða fiskverkunar og því beðið um aðstoð frá Íslandi. „Við veittum hana, ekki bara Þróunarsamvinnustofnun, heldur fjöldi íslenskra skipstjórnarmanna sem komu og hjálpuðu.“

Íslendingar hafi rekið fyrir þá Landhelgisgæslu, Hafrannsóknastofnun, búið til kvótakerfi fyrir þá og markaðskerfi, veiðileyfisgjaldið, sem ekki hafi tekist að koma á hér á landi.  

„Við fylgdumst með því á meðan við vorum þarna hvernig þetta væri rekið og gerðum ekki athugasemdir nema mjög sjaldan. Síðan förum við 2008 og síðan kemur Samherji — og þetta er allt hrunið.“

Sighvatur segist ekki kunna að meta það hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Koma verði í ljós hvort brotin sem þarna hafi verið framin séu fyrnd. Hann segist spenntur að sjá viðbrögð þjóðarinnar því viðbrögð stjórnmálamanna fari oft eftir viðbrögðum þjóðarinnar. Þá bendir hann á að íslenska ríkisstjórnin sé núna að leggja til að lækka veiðileyfagjöld á Samherja um stórfé. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 395,14 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,78 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,23 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 153,90 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Manni ÞH 88 Grásleppunet
Grásleppa 885 kg
Skarkoli 158 kg
Þorskur 49 kg
Samtals 1.092 kg
26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 395,14 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,78 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,23 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 153,90 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Manni ÞH 88 Grásleppunet
Grásleppa 885 kg
Skarkoli 158 kg
Þorskur 49 kg
Samtals 1.092 kg
26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg

Skoða allar landanir »