RÚV ekki með gögnin um Samherja

Í svari sínu til lögmanns Samherja segir Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, …
Í svari sínu til lögmanns Samherja segir Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, RÚV ekki hafa í vörlum sínum gögnin sem Kastljós árið 2012 byggði umfjöllun sína á um meint brot Samherja á þágildandi gjaldeyrislögum. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkisútvarpið býr ekki yfir skjalinu sem Kastljós byggði umfjöllun sína á 27. mars 2012 um Samherja og meinta sölu afurða á undirverði til dótturfélags erlendis. Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við beiðni Samherja um að fá umrætt skjal afhent, að því er fram kemur í færslu á vef fyrirtækisins.

„RÚV hefur ekki umrætt skjal í fórum sínum lengur. Það var notað við vinnslu Kastljóssþáttar árið 2012 og afhent Seðlabankanum að hans ósk í febrúar það ár,“ segir í svari Stefáns. Þá hvetur hann Samherja frekar til þess að beina fyrirspurninni að Verðlagsstofu skiptaverðs eða Seðlabanka Íslands.

Í færslunni er fullyrt að svar útvarpsstjórans bendi til þess að þegar Stefán og Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri RÚV í síðustu viku í yfirlýsingu mótmæltu ásökunum Samherja, um að Helgi Seljan fréttamaður hafi átt við gögn um meinta sölu og að ekki væri til skýrsla sem studdi ásakanir í garð Samherja, höfðu þau ekki séð umrædd gögn.

„Svar útvarpsstjóra við erindi lögmanns Samherja bendir til þess að útvarpsstjóri og fréttastjóri hafi í reynd ekki vitað hvort Ríkisútvarpið hefði skýrsluna undir höndum, eða hvers eðlis skýrslan væri, áður en yfirlýsingin var birt. Eru því sterkar vísbendingar um fullyrðingar í yfirlýsingunni hafi verið settar fram án vitneskju um hvort þær væru sannar,“ segir í færslunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,63 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 394,64 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 126,74 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,50 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.5.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 1.786 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.963 kg
17.5.24 Gísli EA 221 Grásleppunet
Grásleppa 2.729 kg
Þorskur 53 kg
Samtals 2.782 kg
17.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Keila 215 kg
Þorskur 192 kg
Karfi 114 kg
Steinbítur 47 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 575 kg
17.5.24 Steini G SK 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.685 kg
Þorskur 298 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 1.987 kg

Skoða allar landanir »