Siðanefnd féllst ekki á endurupptöku

Helgi Seljan fréttamaður.
Helgi Seljan fréttamaður. Skjáskot/RÚV

Siðanefnd RÚV hefur hafnað endurupptökubeiðni Helga Seljan, fréttamanns RÚV, í máli um brot Helga á siðareglum RÚV. Siðanefndin úrskurðaði í mars að Helgi hefði gerst brotlegur vegna ummæla sinna um Samherja. Úrskurðurinn hafði þó engin áhrif á störf hans innan RÚV.

Helgi fór fram á að málið yrði tekið upp aftur vegna meints vanhæfis Sigrúnar Stefánsdóttur, nefndarmanns í siðanefnd RÚV, en hún er jafnframt skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins við Háskólann á Akureyri, sem er meðal annars styrktur af Samherja. Þá er hún einnig stjórnarmaður í N4 ehf. á Akureyri, sem er í óbeinni eigu Samherja, auk annarra, í gegnum fjárfestingarfélagið Vör og Síldarvinnsluna. 

Í svari siðanefndar við endurupptökubeiðni Helga segir meðal annars: 

„Hvað varðar hæfi eins nefndarmanna, Sigrúnar Stefánsdóttur, sem tilfnefnd var í siðanefnd RÚV af starfsmannafélagi RÚV eftir að kæra barst, þá kemur ekkert fram í bréfi þínu sem gefur til kynna að hún hafi ekki verið hæf í skilningi stjórnsýslulaga til að kveða upp úrskurðinn. Afmarkað verkefni Sigrúnar er varðar Vísindaskóla unga fólksins, sem er vikulangt námskeið fyrir börn á aldrinum 11-13 ára og er innan Háskólans á Akukreyri, lá fyrir og er greitt af Háskólanum á Akureyri, þó starfsemi skólans sé vissulega studd af 20-25 fyrirtækjum á Akureyri. Seta hennar í stjórn fjölmiðilsins N4, undanfarin sjö ár, sem sjálfstæður stjórnarmaður er öllum kunn. Hún er ekki eigandi fjölmiðilsins né á fjölmiðillinn sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta í málinu. Fjölmiðillinn er jafnframt með skýrar reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og stjórn hans kemur að engu leyti að ritstjórn og daglegum störfum. Því hefur ekkert komið fram sem raskar því mati að hún hafi verið hæf til að kveða upp úrskurð í málinu og ekkert komið fram sem dregur óhlutdrægni hennar með réttu í efa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.108 kg
Þorskur 156 kg
Skarkoli 26 kg
Ýsa 2 kg
Samtals 1.292 kg
27.4.24 Án BA 77 Grásleppunet
Grásleppa 1.497 kg
Þorskur 43 kg
Skarkoli 8 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 1.555 kg
27.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.318 kg
Þorskur 69 kg
Samtals 1.387 kg
27.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.230 kg
Þorskur 61 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.305 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,62 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.108 kg
Þorskur 156 kg
Skarkoli 26 kg
Ýsa 2 kg
Samtals 1.292 kg
27.4.24 Án BA 77 Grásleppunet
Grásleppa 1.497 kg
Þorskur 43 kg
Skarkoli 8 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 1.555 kg
27.4.24 Neisti HU 5 Grásleppunet
Grásleppa 1.318 kg
Þorskur 69 kg
Samtals 1.387 kg
27.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 1.230 kg
Þorskur 61 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.305 kg

Skoða allar landanir »