Samherji biðst afsökunar

Í yfirlýsingunni biðst Samherji afsökunar á viðbrögðum sínum við fréttaumfjöllun …
Í yfirlýsingunni biðst Samherji afsökunar á viðbrögðum sínum við fréttaumfjöllun og segir að of langt hafi verið gengið. mbl.is

Samherji hefur gengið of langt í viðbrögðum sínum við umfjöllum fjölmiðla um fyrirtækið og biðst fyrirtækið afsökunar á framgöngu sinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu sem birt var nú í hádeginu.

Í yfirlýsingunni segir að stjórnendum og starfsfólki hafi sviðið umfjöllun um fyrirtækið og störf þess sem því þyki hafa verið einhliða, ósanngjörn og ekki alltaf byggð á staðreyndum. Í slíkum aðstæðum geti reynst erfitt að bregðast ekki við.

Það breyti því þó ekki að þau orð sem starfsmenn fyrirtækisins hafa viðhaft sín á milli séu óheppileg. Vísar félagið þar væntanlega til tölvupóstsamskipta starfsmanna félagsins sín á milli, sem Kjarninn gerði opinber á dögunum.

Þar ræddi hópur starfsmanna félagsins, sem kallaði sig „skæruliðadeild fyrirtækisins“, um leiðir til að koma höggi á blaðamenn sem hafa staðið í stafni í umfjöllun um starfsemi Samherja í Namibíu og meintar mútugreiðslur, einkum Helga Seljan, auk þess að leggja á ráðin um hvernig beita megi ítökum sínum til að hafa áhrif á formannskjör í Blaðamannafélaginu og prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 439,00 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,69 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 193,05 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,88 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 524 kg
Samtals 524 kg
13.5.24 Hrefna SF 52 Handfæri
Þorskur 684 kg
Ufsi 348 kg
Samtals 1.032 kg
13.5.24 Þórdís SI 6 Handfæri
Þorskur 552 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 557 kg
13.5.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 665 kg
Ufsi 54 kg
Samtals 719 kg
13.5.24 Anna ÓF 83 Handfæri
Þorskur 734 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 744 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 439,00 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,69 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,46 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 193,05 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,88 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,33 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 524 kg
Samtals 524 kg
13.5.24 Hrefna SF 52 Handfæri
Þorskur 684 kg
Ufsi 348 kg
Samtals 1.032 kg
13.5.24 Þórdís SI 6 Handfæri
Þorskur 552 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 557 kg
13.5.24 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 665 kg
Ufsi 54 kg
Samtals 719 kg
13.5.24 Anna ÓF 83 Handfæri
Þorskur 734 kg
Ufsi 8 kg
Karfi 2 kg
Samtals 744 kg

Skoða allar landanir »