Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Yfirlæknir heilsugæslu á Ísafirði

Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi yfirlæknis heilsugæslu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Um er að ræða 100% ótímabundið starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi. 

Yfirlæknir stýrir daglegum rekstri heilsugæslunnar á Ísafirði, þar sem aðalstarfsstöð er, og ber faglega ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga. 

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 270 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar (www.hvest.is).

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.

 

Verkefni

  • Yfirumsjón með daglegri starfsemi heilsugæslu á Ísafirði
  • Fagleg ábyrgð á heilsugæsluþjónustu allrar stofnunarinnar
  • Mannaforráð með læknum á heilsugæslu á Ísafirði, þ.m.t. verktökum
  • Umsjón með námi læknanema, kandídata og sérnámslækna
  • Almenn störf heimilislæknis ásamt vinnu á öðrum deildum stofnunar eftir samkomulagi
  • Áætlanagerð, umbætur og þróun starfsemi

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í heimilislækningum
  • Framúrskarandi samskiptafærni og góð leiðtogafærni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Drifkrafur og árangursmiðað viðhorf
  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu

Laun

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Tengiliður/ir

 

Sett inn: 8. maí.

Yfirlæknir heilsugæslu á Ísafirði

Skráð 8. maí.
Staðsetning Vestfirði
Starfssvið Heilbrigðisþjónusta
Starfshlutf. Fullt starf
Ums.frestur 27. maí

Nýjustu störfin