Raketta til hversdagsbrúks

Við Schloss Solitude, vestur af Stuttgart. Guli liturinn hjálpar til …
Við Schloss Solitude, vestur af Stuttgart. Guli liturinn hjálpar til við að rýma vinstri akreinina á hraðbrautunum enda sést hann langar leiðir. mbl.is/Ásgeir Ingvarsson

Oft eru það smáatriðin sem lýsa persónuleika bíla best. Þannig er ekki hægt að ræsa Porsche 718 Cayman með því einu að ýta á takka á mælaborðinu, heldur þarf að snúa lykli.

Porsche gæti hæglega komið fyrir sama búnaði og finna má í öllum betri bílum í dag, þar sem skynjari nemur bíllykilinn í vasa ökumanns og kveikt er á vélinni með því að þrýsta á stóran „start“-takka, en með því að þurfa að snúa lykli skapast meiri tenging við ökutækið og ræsingin verður meiri viðburður.

Það er í takt við allt annað 718 GT: þar er farið alla leið í akstursupplifuninni. Þetta er bíll fyrir þá sem hafa virkilega gaman af að aka.

Hörðustu Porsche-aðdáendur vita raunar ekki alveg hvað þeim á að finnast um 718-línuna. Á blaði er nýi 911 miklu meiri bíll á alla kanta: stærri, með öflugri vél og um það bil tvöfalt dýrari. Mætti því halda að 718 væri ágætis byrjenda-Porsche, fyrir þá sem eru ekki alveg búnir að vinna sig upp í forstjórastólinn en langar samt í þýskt tryllitæki á nokkuð viðráðanlegu verði. Nema hvað 718-bílarnir eru jafn liprir og þeir eru nettir, í einstaklega góðu jafnvægi á alla kanta, og þegar komið er út á kappakstursbraut er ekkert endilega betra að vera á 911. Bílagagnrýnendur vissu ekki alveg hvað þeir áttu að halda þegar þeim þótti sumum sem litli bróðir væri orðinn stóra bróður fremri.

Kraftar og notagildi

718 Cayman GTS er meðalkröftuga útgáfan og hittir á hárrétta punktinn fyrir þá sem vilja bíl sem veitir líflega akstursupplifun, án þess samt að fara út fyrir öll velsæmismörk. Það mætti fara upp um eitt þrep, í Cayman GT4, fá nærri 50 hestöfl til viðbótar og vera 0,2 sekúndum fljótari í hundraðið, en það væri kannski fullmikið af hinu góða fyrir skreppitúra út í Krónuna. Svo mætti fara þrepi neðar, í grunnútgáfuna, og fórna 60 hestöflum og 0,4 sekúndum – sirkabát 300 hestöfl fyrir tæpar 11 milljónir króna, sem er vel sloppið. En væri nógu mikið fútt í því?

Í Cayman GTS er að finna prýðilegt jafnvægi á milli hraðaleikfangs og hversdagsbíls svo að það yrði aldrei leiðinlegt né heldur sérstaklega erfitt að búa með honum.

Og ef eitthvað er má segja að 718 Cayman, sama í hvaða kraftaútfærslu hann kemur, sé hentugri til daglegrar notkunar en 911. Kemur það til af ágætis geymsluplássi bæði í fram- og afturfarangursrýminu. Á 911 er ekkert skott en þar rúmast ein eða tvær handfarangurstöskur til viðbótar við þær tvær-þrjár sem komast í framrýmið. Að vísu er 911 með aftursæti, en þar geta aðeins minnstu manneskjur setið með góðu móti svo að þessi tvö aukasæti teljast varla með við mat á notagildi sportbílanna frá Porsche.

Betri á stuttum spretti en í langferð

Blessunarlega fékk ég að sækja bílinn í Stuttgart, í höfuðstöðvar Porsche. Hann nýtur sín nefnilega svo fjarskavel á hraðbrautunum og gerir heilmikið fyrir sálartetrið að finna fyrir algjöru sjálfstrausti kominn vel yfir 200 km á klukkustund á rennisléttu þýsku malbiki. Stefnan var sett á Berlín, um 6-7 tíma akstur aðra leið og annað eins til baka, því hvað annað á maður að gera en að aka sem mest þegar svona bíll er í boði, og skjótast í leiðinni í Pergamon-safnið?

Eins gaman og það er að spana þá fann ég samt að 718 Cayman GTS er kannski hentugri fyrir stutta og snarpa túra en fyrir svona löng þjóðvegaævintýri. Töluvert veghljóð berst inn í farþegarýmið þegar komið er á góðan hraða svo það er ekki hægt að hlusta á djass eða rólega klassík: bara hart og spólgratt rokk. Var upplifunin allt önnur á stóru systur, Panamerunni, sem ég ók hér um árið í nærri 3.000 km hring um alla Evrópu og hefði alveg getað hugsað mér aðra 3.000 til viðbótar.

Upplýsingaskjárinn er tiltölulega smár miðað við marga nýja bíla í dag, en gerir sitt gagn og miðlar öllu sem ökumaður þarf að vita á skýran og einfaldan hátt. Skeiðklukkan ofan á mælaborðinu, sem fylgir með Sport Chrono-pakkanum, átti það til að endurspeglast í framrúðunni við ákveðin birtuskilyrði, og er það ekki heppilegt á harðaspani á hraðbraut. Samt ætti enginn að láta það fæla sig frá að splæsa í Sport Chrono sem aukabúnað, því með í kaupunum fylgja „launch control“ og blessaður „sport“-takkinn sem situr á lítilli skífu í seilingarfjarlægð frá þumalfingri hægri handar. Ýttu á þennan takka og bílinn fer í vígaham í um 20 sekúndur og gagnlegt að geta sótt þennan viðbótarkraft þegar þarf t.d. að taka fram úr.

Takmarkað litaframboð

Þá átti ég ekki auðvelt með að finna stað til að hvíla olnbogana, enda hugmyndin kannski frekar sú að baki hönnun innanrýmisins að 718 sé notaður á fleygiferð á kappakstursbraut með báðar hendur límdar við stýrið, frekar en að ekið sé í makindalegri stellingu eins og konungur á hásæti.

Stærsti gallinn, ef kalla má galla, er að þegar kemur að 718 Cayman GTS býður Porsche aðeins upp á sextán liti, og fáir þeirra eru mér sérstaklega skapi (fyrir nýja 911 tel ég sautján liti, sem er litlu skárra). Er það helst að sérvöldu litirnir – Miami-blár, hraun-rauðgulur og krítargrár – dragi fram það fegursta í lögun bílsins, en til samanburðar má velja úr 37 litum við kaup á McLaren og hjá Lamborghini eiga bílasprautararnir til 41 lit.

Guli liturinn á prufubílnum er ekki alveg minn tebolli, en skær liturinn hefur þó þann ótvíræða kost að silakeppirnir á þýsku hraðbrautunum sjá bílinn greinilega í baksýnisspeglinum og eru fljótir að tæma vinstri akreinina.

Og almáttugur hvað það var gaman að aka þessum hæfilega hráa sportbíl alla leið frá Stuttgart til Berlínar -- á vinstri akreininni allan tímann.

Porsche 718 Cayman GTS

» Flöt 4 strokka 2,5 l bensínvél m.

forþjöppu

» 365 hö (PS) / 430 Nm

» 7 gíra PDK-skipting

» Frá 8,5 l /100 km í blönduðum akstri

» 0-100 km/klst á 4,3 sek.

» Hámarkshr. 290 km/klst.

» Afturhjóladrifinn

» 235/35 ZR 20 dekk að framan,

265/35 ZR 20 að aftan

» Eigin þyngd 1.405 kg

» Farangursrými 275 l samtals

» Sótspor 194 g/km

Nákvæmt listaverð liggur ekki fyrir hjá Bílabúð Benna en myndi kosta frá 16 milljónum króna.

Grunnútgáfa 718 Cayman, með 300 ha vél, kostar frá 10,9 milljónum.

Fallegur er hann frá öllum hornum og rúmgóður, með bæði …
Fallegur er hann frá öllum hornum og rúmgóður, með bæði fram- og afturfarangursrými.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Að innan er bíllinn hæfilega hrár og hvass, gerður fyrir …
Að innan er bíllinn hæfilega hrár og hvass, gerður fyrir þá sem taka akstur alvarlega.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Porsche 718 GTS.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: