Nýtt útspil með fjórhjóladrifi

Við höfum miklar væntingar til Dacia Duster og horfum vonandi fram á spennandi tíma,“ segir Loftur Ágústsson, markaðsstjóri bílaumboðsins BL í samtali við Morgunblaðið. BL hefur hafið sölu á hinum fjórhjóladrifna Duster sem hlotið hefur mjög góðar móttökur í Evrópu, ekki síst í Frakklandi og Þýskalandi, ekki síst sakir hagstæðs verðs.

Sigurför í Evrópu

Dacia Duster er smíðaður í smiðjum Nissan/Renault samsteypunnar í Rúmeníu. Hafa Dacia-bílar farið sigurför um fjölmörg lönd í Evrópu á undanförnum misserum, ekki síst vegna hagstæðs verðs. Dacia Duster mun kosta 3.990.000 krónur með dísilvél og fjórhjóladrifi.

„Ástæðan fyrir því að við erum ekki byrjaðir fyrir löngu að flytja þennan bíl inn er hrunið. Við höfum um tveggja ára skeið átt í viðræðum við Renault og Nissan um að fá að selja hann. Á sama tíma vorum við að koma Renault á koppinn hér og þetta hefur bara tekið sinn tíma, að koma öllu heim og saman,“ segir Loftur.

Mjög spurt um ódýrari bíla

Spurður hvers vegna BL ráðist í að bæta þessu nýja merki í umboðahóp sinn stóð ekki á svari. „Í fyrsta lagi átti sér stað umræða hér innanhúss um hvort þessi bíll væri að standast væntingar. Það er hið fyrsta við þurfum að gera upp við okkur, er þetta vara sem við viljum láta kenna okkur við. Og rannsóknir okkar leiddu í ljós, að þessi bíll er að gera sig, standast væntingar,“ segir Loftur ennfremur.

Hjá BL var það viðhorf ríkjandi að Dacia væru einfaldlega spennandi bílar. „Svo er ekki framhjá því að horfa, að við teljum að verðið sem við getum boðið eigi eftir að falla í góðan jarðveg. Við verðum vör við, að það er mjög leitað eftir bílum sem eru bæði hagkvæmir í rekstri og kosta minna í upphafi. Og við eigum engin útspil önnur með fjórhjóladrifsbíl sem kostar undir fjórum milljónum króna,“ segir Loftur. Bætir við að reynsla fyrirtækisins af dísilvélunum í Renault, eins og 1500-vélinni sem verið hefur í Meganbílnum, hafi mælt með því að bjóða upp á Daciamerkið. Dusterinn er með sömu vél sem er mjög eyðslugrönn.

„Okkur sýnist þetta gæti orðið valkostur sem fólk vill skoða. Auðvitað þurfa neytendur að yfirstíga þá hindrun að þetta er bíll sem engin reynsla er af á Íslandi. En við getum boðið hann á verði, með þriggja ára ábyrgð, sem margir eru að bjóða notaða bíla á. Og það er mjög sterkt fyrir okkur að í öðrum löndum, eins og Frakklandi, hefur þessi bíll farið afar vel af stað. Þá var Dusterinn sjöundi söluhæsti bíllinn til einstaklinga í Þýskalandi í sumar en það er mjög kröfuharður markaður og segir því sitt um bílinn.“

Sandero næstur á dagskrá

Loftur segist telja að í tilfelli Renault og Dacia megi sjá við hliðstæður við framleiðslu hjá Volkswagen og Skoda.

„Þar virðist um svipaða uppbyggingu að ræða. Framleiðandinn segist einungis nota íhluti sem notaðir hafa verið með góðum árangri í öðrum bílum. Hann kveðst og forðast að vera með mjög tæknilegar útfærslur og úrlausnir sem geta bilað og eru mjög dýrar í upphafi og hækka bíla mjög í verði. Skodinn er ofboðslega vinsæll bíll hér á landi og með margra ára forskot, en við væntum þess að Duster höfði með svipuðum hætti til fólks,“ segir Loftur.

Sandero er næstur

Aðrir bílar frá Dacia hafa notið mikilla vinsælda, eins og til dæmis Sandero. Segir Loftur Ágústsson stefnu BL að byrja með Duster og fá reynslu á hann áður en næsta skref sé stigið. „Það er ekki ólíklegt að næsta vor, 2013, munum við taka Sandero inn. Hann verður með nýju boddíi og lofar góðu. Hann er næstur á dagskrá hjá okkur.“

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: