Langar þig í Benz pallbíl?

Þetta sér maður ekki á hverjum degi.
Þetta sér maður ekki á hverjum degi.

Þetta er svo rangt, en samt svo sniðugt. Á uppboðsvefnum Ebay er nú til sölu Mercedes Benz 300TD pallbíll, árgerð 1981. Jú, það er reyndar rétt að slíkur bíll var aldrei framleiddur hjá Benz, heldur er um skutbíl að ræða sem hefur verið breytt með þessum hætti.

Kollegar okkar á Autoweek.com líkja bílnum við þýska útgáfu af Chevrolet El Camino en slíkar breytingar eru allt annað en óþekktar fyrir þessa týpu af Benz. Prófið bara að gera Google-leit með orðunum „mercedes w123 pickup“.

Eftir myndum að dæma er komið að lítils háttar viðhaldi, og seljandinn ábyrgist ekki ástand bílsins, sem er staddur í Bandaríkjunum.

-Uppboðið endar á laugardaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina