Dásama akstur um fjöll og firnindi

Annar af jeppum AEV við Skógafoss.
Annar af jeppum AEV við Skógafoss.

Fulltrúar bandaríska bílabreytingafyrirtækisins American Expedition Vehicles (AEV) voru nýverið á ferð á Íslandi og urðu ekki fyrir vonbrigðum með aksturinn í íslenskri náttúru.

AEV breytir bílum til ferðalaga utan venjulegra vega og til aksturs á svæðum þar sem venjulegir og óbreyttir bílar standa verr að vígi.

Hingað til lands komu útsendarar AEV með tvo breytta Jeep Wrangler JK bíla. Óku þeir um jökla, yfir ár og fljót og klifu fjöll.

Meðfylgjandi myndband varpar ljósi á akstur þennan:

mbl.is