Mercedes-Benz boðar sinn fyrsta pallbíl

Þannig ímynda hönnuðir sér að pallbíll Mercedes-Benz komi til með …
Þannig ímynda hönnuðir sér að pallbíll Mercedes-Benz komi til með að líta út.

Áður en áratugurinn er úti mun pallbíll frá Mercedes-Benz sjá dagsins ljós. Slíkan bíl hefur þýski eðalbílaframleiðandinn ekki sent frá sér áður. Sótt verður með hann inn á markaði í Suður-Ameríku, Suður-Afríku, Ástralíu og Evrópu.

Pallbílar hafa notið vinsælda um veröld víða sakir fjölhæfni, alhliða notkunargildis og burðargetu upp á um eitt tonn. Því er um söluvænlega vöru að ræða í augum Mercedes.

„Mercedes-Benz-pallbíllinn mun leggja sitt af mörkum til að vaxtarmarkmið okkar á heimsvísu náist,“ segir stjórnarformaður Daimler og forstjóri bílaframleiðslu Mercedes-Benz, Dieter Zetsche, um áformin.

Hann segir að lögð verði áhersla á smíði bíls sem endurspegli öll gildi og gæði Mercedes hvað varðar öryggi, þægindi, ágæti aflrásarinnar og virði.

Markaður fyrir meðalstóra pallbíla er sem stendur að ganga í gegnum breytingar um heim allan. Bílar sem þessir eru í auknum mæli brúkaður sem einkabílar og bæði einstaklingar og fyrirtæki gera auknar kröfur um búnað, þægindi og meðfærileika sem um fólksbíla væri að ræða.

Mercedes-Benz er fyrsti lúxusbílaframleiðandinn sem bregst við þessari þróun með því að framleiða eigin pallbíl.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: