Nissan Leaf á toppnum hjá BL: Rafbíll í fyrsta sinn mest selda einstaka gerðin hjá BL

Hlutdeild BL á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði (án bílaleiga) í mars …
Hlutdeild BL á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði (án bílaleiga) í mars var 25,1%.

Sala bifreiða hjá BL ehf. gekk vel í nýliðnum marsmánuði og er hlutdeild fyrirtækisins á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði (án bílaleiga) 25,1%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Alls voru afhentir 217 bílar í mars, 34 bílum fleiri en í febrúar. Söluhæsta einstaka merkið var Nissan, með alls 67 bíla, þar af 25 Nissan Leaf, og var þetta í fyrsta sinn sem rafbíll var mest selda einstaka bílgerðin hjá BL.

Leaf vex í öllum markhópum

Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL, segir bílasöluna aukast samfara hækkandi sól og það eigi einnig við um áhuga á rafbílnum Leaf frá Nissan. „Við sjáum nokkuð skemmtilega dreifingu á Leaf því hún fer vaxandi í öllum markhópum. Við sjáum að fjölskyldufólk horfir í sífellt auknum mæli til Leaf sem fjölskyldubíls, fleiri og fleiri fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu eru að taka hann í sína þjónustu og bílaleigurnar eru einnig farnar að bjóða Leaf á leigu. Bara í marsmánuði fóru sex Leaf til bílaleiga og því markaði síðasti mánuður einnig tímamót á bílaleigumarkaði hvað Leaf varðar,“ segir Skúli.

Flest bílaumboð landsins eru nú byrjuð að afhenda bíla í stórum stíl til bílaleiganna og nam sá hluti um 40% af heildarsölu marsmánaðar þegar leigurnar fengu afhenta 432 bíla, segir ennfremur í tilkynningunni.

jonagnar@mbl.is

Nissan Leaf nýtur vaxandi vinsælda í öllum markhópum, segir Skúli …
Nissan Leaf nýtur vaxandi vinsælda í öllum markhópum, segir Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL. mbl.is/Nissan
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: