Svona verður jeppi til

Citroen Aircross hugmyndajeppinn.
Citroen Aircross hugmyndajeppinn.

Citroen mætir til leiks á stóru bílasýninguna alþjóðlegu sem hefst í Sjanghæ í Kína um helgina með nýjan hugmyndajeppa, Aircross.

Jeppi þessi gæti orðið að veruleika á næstu tveimur árum, eða jafnvel fyrr. Hér er eiginlega þó um jeppling að ræða af svipaðri stærðargráðu og Renault Captur og Nissan Juke.

Í aðdraganda sýningarinnar hefur Citroen sent frá sér myndband sem varpar ljósi á smíði þessa hugmyndabíls.

mbl.is

Bloggað um fréttina