Dagur B. nýtur lífsins í Suður-Afríku

Dagur B. Eggertsson hafði það gott í Suður-Afríku um helgina.
Dagur B. Eggertsson hafði það gott í Suður-Afríku um helgina. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á meðan fannfergi gerir íbúum á höfuðborgarsvæðinu lífið leitt nýtur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri lífsins í Suður-Afríku. Dagur var staddur í Suður-Afríku um helgina til að gefa brúðhjón saman. 

Dagur gaf saman mág sinn, Þórhall Einarsson, og Carolinne Lumsden. Baldur Kristjánsson ljósmyndari, sem einnig er mágur Þórhalls, birti fallegar myndir úr brúðkaupinu á Instagram.

Mikið hefur verið fjallað um snjómokstur í Reykjavík undanfarna daga eftir að mikið snjóaði á suðvesturhorninu. Þá sýndi úttekt mbl.is í gær að hlutfallslega eru fæst snjómoksturstæki í Reykjavík af nágrannasveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert