Elti kærustuna til Árósa og samdi plötu

Fannar Ingi Friðþjófsson í Hipsumhaps samdi plötu í Árósum en …
Fannar Ingi Friðþjófsson í Hipsumhaps samdi plötu í Árósum en hann heldur tónleika í Háskólabíói 3. maí. Ljósmynd/Jotta_97

Í dag gaf Hipsumhaps út tónlistarmyndband við lagið Hjarta af plötunni Ást & praktík. Platan var að stórum hluta samin í Árósum. Fann­ar Ingi Friðþjófsson í hljóm­sveit­inni Hips­um­haps segir að myndbandið við lagið sé eins konar ástaróður til dönsku borgarinnar. 

Fjöllistamaðurinn Tambó Kristjánsson leikstýrði myndbandinu við lagið Hjarta. Fannar segir að þeir hafi tekið upp myndbandið á fylleríi kvöldið áður en hann flutti heim frá Árósum. „Myndbandið er því nokkurs konar óður til Árósa – og vináttu milli tveggja karlmanna,“ segir Fannar. 

Hvað varstu að gera í Árósum?

„Kærastan mín var í námi og ég flutti út með henni fyrir lokaárið í skólanum,“ segir Fannar. 

Hvernig var að búa þar?

„Árósar eru eitt best geymda leyndarmál Evrópu. Ég elska þessa borg. Í henni er gott fólk og frábær menning. Meira næs en Köben.“

Hvað fjallar lagið Hjarta um?

„Lagið fjallar um eilífðar-flagara sem er líkamlega ófær um að elska. Byggt á fólki sem ég þekki og eigin hjartagalla. Atli Bollason skrifaði textann með mér og við Kiddi, Kristinn Þór Óskarsson, útsettum lagið með frábæru fólki.“

Það er mikið um að vera hjá Hipsumhaps um þessar mundir en stórtónleikar í Háskólabíói fara fram þann 3. maí. 


 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert