Vissi ekki að hún gekk með barn

Bresk kona áttaði sig ekki á óléttunni fyrr en hún …
Bresk kona áttaði sig ekki á óléttunni fyrr en hún fór upp á spítala. AFP

Bresk kona sem hélt að hún væri bara að fitna áttaði sig ekki á því að hún væri ólétt fyrr en klukkutíma fyrir fæðingu sonar síns. Konan fór upp á spítala vegna magaverkja og neitaði því að vera ólétt. Stuttu seinna fóru hún og maðurinn hennar heim með ungbarn. 

Sonur parsins kom í heiminn hinn 1. september. Rúmlega klukkutíma áður en hann fæddist fóru þau á spítala. Ástæða spítalaheimsóknarinnar var miklir magaverkir fyrr um nóttina. Parið var í áfalli þegar þau komust að raunverulegri ástæðu verkjanna. 

„Ég fann ekki fyrir neinni morgunógleði né öðrum einkennum. Rétt í lokin, um sólarhring áður en hann kom í heiminn, þandist maginn á mér út. En svo fékk ég mikla magaverki og pissaði ekki í 24 tíma svo við héldum að það væri eitthvað að,“ sagði konan í viðtali við Daily Mail. 

Þegar komið var á spítalann spurði hjúkrunarfræðingur hana hvort hún gæti verið ólétt. Hún svaraði því neitandi. Það var ákveðið að athuga það. „Við vorum í miklu áfalli þegar hann kom.“

Hin nýbakaða móðir gekk með barnið í 41 viku og fór á blæðingar allan tímann. Hún fitnaði meðan á útgöngubanni stóð en kenndi því um að hún vann mikið heima hjá sér og borðaði mikið. Fór ekkert í ræktina á meðan né stundaði aðra hreyfingu.

Foreldrarnir voru í áfalli þegar sonurinn kom í heiminn.
Foreldrarnir voru í áfalli þegar sonurinn kom í heiminn. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert