Eignaðist tvíbura með annarri konu í miðjum skilnaði

Tónlistarmaðurinn Jimmie Allen er orðinn sex barna faðir.
Tónlistarmaðurinn Jimmie Allen er orðinn sex barna faðir. Skjáskot/Instagram

Í apríl 2023 tilkynnti kántrísöngvarinn Jimmie Allen að hann og fyrrverandi eiginkona hans, Alexis Gale, hefðu ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir tveggja ára hjónaband. Það sem vakti þó mesta athygli var að þau tilkynntu á sama tíma að Gale væri ófrísk að þriðja barni þeirra. 

Nú hefur Allen greint frá því að hann hafi eignast tvíbura með annarri konu á sama tíma og hann var að skilja við Gale, en hann birti fyrstu myndina af tvíburunum á Instagram-síðu sinni í vikunni og sagðist ekki skammast sín. Hann hefur ekki sagt hver móðir tvíburanna er. 

„Ég á sex börn. Ég elska hvert og eitt þeirra. Ég neita að skammast mín fyrir eitthvað af börnunum mínum. eina skoðunin sem mér þykir vænt um er þeirra,“ skrifaði hann við færsluna samkvæmt vef Page Six

Var kærður fyrir kynferðisofbeldi

Þegar fyrrverandi hjónin sóttu um skilnað hafði Allen nýlega verið kærður af fyrrverandi yfirmanni sínum fyrir kynferðisofbeldi, sem hann hélt fram að hefði verið „kynferðislegt samband með samþykki“ en hún féll frá málsókninni í síðustu viku. 

Söngvarinn bað Gale afsökunar á framhjáhaldi sínu á Instagram-færslu sem hefur nú verið eytt, en sex mánuðum síðar kom þriðja barn þeirra í heiminn eða í september 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert