Tónlist | Styttist í að Rock Star: Supernova hefjist

Magni Ásgeirsson
Magni Ásgeirsson

Rúm vika er í að raunveruleikaþátturinn Rock Star: Supernova hefjist en eins og hverju einasta mannsbarni er kunnugt um komst Magni í Á móti sól í 15 manna hópinn sem keppir um hylli hljómsveitarinnar Supernova. Sveitin er, eins og áður hefur komið fram, skipuð þeim Tommy Lee úr Mötley Crüe, bassaleikaranum Jason Newstead sem var í Metallica og Gilby Clarke, fyrrverandi gítarleikara Guns N' Roses. Samkvæmt heimasíðu þáttarins verður fyrirkomulagið hið sama og í fyrstu þáttaröðinni þar sem kanadíski söngvarinn J.D. Fortune var valinn til að fylla í skarð Michael Hutchence, fyrrum söngvara INXS.

Kynnir þáttarins er sem fyrr Brooke Burke og gítarleikarinn Dave Navarro verður Supernova innan handar á sama hátt og hann aðstoðaði INXS en Navarro mun einnig fá til sín þekkta tónlistarmenn sem eiga að hjálpa Supernova að meta keppendur. Má þar nefna Slash, Macy Gray, Moby og Rob Zombie.

Á heimasíðunni kemur einnig fram að upptökustjóri breiðskífunnar, sem sigurvegari þáttanna kemur til með að hljóðrita með Supernova, verði Butch Walker. Hann hefur stjórnað upptökum og samið fyrir bæði Avril Lavigne, Pink og Tommy Lee. Mun sú plata koma út í haust en heimstónleikaferðin hefst snemma árs 2007.

Þau keppa við Magna

FRAMLEIÐENDUR Rock Star: Supernova ferðuðust um allan heim í leit að söngvurum og í þættinum sem hefst í næstu viku verður að finna keppendur frá Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Suður-Afríku, Púertó Ríkó og Íslandi. Af því má sjá að Magni verður hvorki meira né minna en eini fulltrúi Evrópu sem keppir í þáttunum og ætti það eitt að vera nægileg upphefð fyrir sveitastrákinn að austan. En hverjir eru þeir nákvæmlega sem Magni þarf að slá út til að hreppa sæti í hljómsveitinni Supernova? Hér fyrir neðan er að finna stuttar kynningar á keppendunum fimmtán.

Magni

MAGNI er fæddur árið 1978 á Borgarfirði eystri. Hann hóf að fikta við tónlist í heimavistarskólanum á Eiðum þar sem hann nýtti sér til fullnustu tónlistardeild skólans og áður en hann náði fimmtán ára aldri hafði hann leikið með ýmsum hljómsveitum opinberlega. Hann gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 1997 með hljómsveitinni Shape en tveimur árum síðar byrjaði hann í Á móti sól sem varð fljótlega ein af vinsælli popphljómsveitum Íslands. Magni á að baki sex breiðskífur með Á móti sól og tvær þeirra hafa náð gullsölu. Þá hefur hann sungið inn á ófá vinsældalögin, bæði einn og með öðrum tónlistarmönnum.

Dilana

ÁTRÚNAÐARGOÐ Dilönu er Tina Turner og þegar Dilana stígur á svið er auðséð hvers vegna. Eins og Tina hefur hún meiri kraft og áræði en flestir - og þá gildir kynið einu. Dilana steig fyrst á svið þegar hún var sjö ára gömul í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Hún hætti í skóla 16 ára og hóf að ferðast um landið með ýmsum hljómsveitum og tónlistaratriðum. Eins og svo margir frá Suður-Afríku flutti Dilana til Hollands þegar hún náði aldri og það leið ekki á löngu þar til hljómsveit hennar var orðin ein sú vinsælasta þar í landi. Þar gaf hún út sína fyrstu sólóplötu, Wonderfool, sem gaf af sér fimm smáskífur, fjögur tónlistarmyndbönd og í kjölfarið túraði hún um Evrópu við góðan orðstír. Dilana er búsett í Bandaríkjunum þar sem hún freistar þess að vinna að tónlist sinni.

Jill Gioia

JILL Gioia sigraði í keppninni Rock n' Sole Band Search Contest sem hönnuðurinn Steve Madden stóð fyrir og í kjölfarið voru stígvél skírð í höfuðið á henni (Jill Joy Boot)!?Gioia kemur frá New York og líkt og borgin er hún hávær og falleg. Hún hefur komið fram bæði í útvarpi og sjónvarpi og unnið fyrir stórstjörnur á borð við Dee Snider, B-52´s og 98 Degrees. Þá hefur hún einnig komið fram í kvöldþætti Dave Letterman og í Manhattan Center með INXS og Gloria Gaynor. Lagið "Don´t Make Me Wait" sem Gioia samdi fór í gullsölu á Spáni.

Matt Hoffer

MATT er fæddur í Denver en alinn upp í uppsveitum New York-ríkis og í úthverfi Chicagoborgar. Matt er 29 ára gamall og byrjaði að spila á gítar 13 ára. Undrafljótt var hann orðinn sérfræðingur í "speed-metal"-riffum og var í kjölfarið kunnur í sínum heimabæ fyrir að vera virtúós, bæði á gítarinn sem ísknattleikskylfuna. Það var knattleikurinn sem ruddi honum braut inn í háskóla en þar útskrifaðist hann með próf í fjármálum um leið og hann sinnti tónlistinni í frístundum. Það var svo þegar hann vann sem fasteignasali að tónlistarferillinn fór að ganga. Hann hefur síðan sent frá sér sólóplötu, komið fram á ýmsum safnplötum og hitað upp fyrir Metallica og The Police.

Jenny Galt

JENNY Galt er 24 ára kanadísk söngkona sem hóf að syngja einungis sex ára gömul og tíu árum síðar var hún byrjuð að leika á gítarinn. Hún ólst upp í Montreal en flutti svo til Ottawa og síðar til Ástralíu þar sem hún hélt áfram að sinna tónlistinni. Hljómsveitin hennar Cherrybomb hefur sent frá sér fjórar plötur, samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Þá hefur hún túrað umtalsvert um Kanada og komið bæði fram í sjónvarpi og útvarpi. Galt er búsett í Vancouver í Kanada þar sem hún hefur aflað sér umtalsverðrar hylli sem mjög fjölbreyttur og hæfileikaríkur tónlistarmaður.

Ryan Star

RYAN er rokkarinn sem allir strákar vilja vera en allar stelpur vilja fyrir kærasta. Hann hefur gott tóneyra, sterka rödd og er samkvæmur sjálfum sér. Þessi 28 ára gamli strákur frá Long Island í New York, lærði á gítar bróður síns með því að pikka upp klassísk rokklög sem hann hlustaði á án afláts. Hljómsveit hans, Stage, var á mála hjá plötufyrirtæki Madonnu, Maverick Records en Star sagði skilið við sveitina fyrir stuttu.

Phil Ritchie

HANN ber það ef til vill ekki með sér, þegar húðflúrin eru skoðuð, en Phil Ritchie var fyrirmyndarnemandi og í lúðrasveit þegar hann var yngri. Hann er fæddur í smábænum Shadyside í Maryland-ríki árið 1978 en fluttist mikið með fjölskyldu sinni þar til hún fann sér samastað í Ocean City í sama ríki. Þar fann Ritcie sína réttu hillu þegar hann var beðinn um að mæta í prufu fyrir rokkhljómsveitina Lennex. Hann skaut öðrum kandídötum ref fyrir rass og með Lennex naut hann talsverðrar hylli sem varð síðar til þess að sveitin lék á hljómleikaferðalögum með sveitum á borð við Cake, Fuel, Bon Jovi og The Goo Goo Dolls. Hann er kraftmikill söngvari og listamaður undir áhrifum frá Tom Petty, Tool, Soundgarden og Jeff Buckley.

Toby Rand

ÞÁ er komið að Ástralanum Toby Rand. Toby fæddist í Melbourne árið 1977 og er yngstur af systkinum sínum. Hann gaf háskólanámið upp á bátinn þegar hann komst að því að söngurinn var hans ástríða og hefur ekki séð eftir þeirri ákvörðun sinni síðan. Hann var söngvari rokksveitarinnar Juke Kartel í Melbourne og hefur samið lög fyrir brimbrettamyndbönd og geisladiska. Hann hefur hitað upp fyrir hljómsveitirnar Nickelback og Taste of Chaos. Eins og er spilar hann í órafmögnuðu tríói en vinnur sér inn aur með því að starfa hjá teppafyrirtæki á kvöldin.

Josh Logan

ÞAÐ er ekki annað hægt en að taka ofan fyrir manni sem segir það blákalt út að karaoke sé ástæðan fyrir því hann lagði fyrir sig tónlistina. Það skýrir þó nokkuð að móðir Logans var karaoke-plötusnúður og það var á vinnustað móður hans sem hann lærði að túlka mismunandi blæbrigði laga - allt frá ballöðum til þungra rokklaga. Fimmtán ára gamall söng hann með hljómsveitinni Gunshy en þegar sveitin lagði upp laupana sneri hann sér að sólóferli sínum sem söngvara. Hann hefur hægt og bítandi getið sér orð fyrir að vera sívinnandi tónlistarmaður og afskaplega fær lagasmiður.

Chris Pierson

CHRIS kvað vera persónulegur tónlistarmaður sem á auðvelt með að nýta sér erfiðleika lífsins í laga- og textagerð. Á því byrjaði hann þegar vinur hans stakk upp á því að hann byrjaði að syngja um persónuleg vandamál sín í stað þess að byrgja þau inni. Áður en langt um leið var hann byrjaður að troða upp á "opnum hljóðnema"-kvöldum í heimabæ sínum og árið 2003 gaf hann út sína fyrstu plötu. Því næst flutti hann til Atlanta þar sem hann hefur unnið sem tónlistarmaður.

Dana Andrews

DANA er borin og barnfædd í bænum Augusta í Georgíu-ríki. Hún lýsir sjálfri sér sem Suðurríkjarós en engin sé rósin án þyrnanna og þrátt fyrir að hún beri af sér rólegan og þægilegan þokka, stjórnar hún sviðinu eins og herforingi. Dana, sem er 22 ára gömul, hóf að feta tónlistarbrautina í barnaskóla þar sem hún tók þátt í söngleikjum, hæfileikakeppnum og nánast öllu öðru sem gaf henni tilefni til að syngja. Eins og er starfar Dana sem gengilbeina meðfram því að syngja í hljómsveit um helgar vítt og breitt um Suður-Karolínu-ríki.

Lukas Rossi

RYNNU tónlistarmennirnir Jeff Buckley og Freddie Mercury saman, fengjum við að öllum líkindum Lukas Rossi út úr þeim samruna. Rossi hefur unnið á flestum sviðum tónlistarinnar undanfarin 15 ár. Hann hefur unnið sem upptökumaður, upptökustjóri auk þess sem hann hefur samið, leikið og sungið með hljómsveit sinni Cleavage. Þá hefur hann samið lög með nokkrum frægum kanadískum hljómsveitum á borð við Papa Roach, I Mother og Big Wreck. Einnig má í dag heyra rödd Rossi í ýmsum sjónvarps-, og útvarpsauglýsingum auk teiknimynda. Hæfileikum Rossi eru lítil takmörk sett og ljóst að Supernova væri mikill fengur í honum.

Storm Large

EINS og nafnið gefur til kynna er Storm ekki smávaxin. Þessi rúmlega 180 sentímetra háa stúlka kemur frá Portland í Oregon en þar hefur hljómsveit hennar The Balls safnað í kringum sig hollum aðdáendahópi sem flykkist á tónleika sveitarinnar til að verða vitni að hávaxinni kynbombu sem kallar ekki allt ömmu sína þegar tónleikaframkoma er annars vegar. Storm var einnig eins og nafnið gefur til kynna, uppreisnargjörn ung stúlka en fann sig þegar hún byrjaði að syngja. Hún er útskrifuð frá The American Academy of Dramatic Arts í New York-borg.

Patrice Pike

ÞESSI Texas-stúlka hefur unnið til verðlauna fyrir tónlist sína sem þykir pönkskotin þrátt fyrir að lundarfari hennar sjálfrar sé best lýst sem rólegu. Pike kemur frá höfuðborg Texas-ríkis, Austin, en sú borg er mörgum íslenskum tónlistarmanninum vel kunn þar sem tónlistarráðstefnu-hátíðin SXSW er haldin þar árlega. Pike hefur sent frá sér fjölmargar skífur með hljómsveitunum Sister Seven and Patrice Pike og Blackbox Rebellion; ferðast um Bandaríkin endilöng og spilað auk þess sem stúlkan hefur látið til sín taka á mörgum sviðum mannúðarmála. Billboard-tónlistartímaritið valdi hana sem eina áhugaverðustu tónlistarkonuna á uppleið.

Zayra Alvarez

VIÐ fyrstu sýn virðist manni sem Alvarez ætti betur heima í raunveruleikaþættinum America's Next Top Model en þegar nánar er að gáð má finna einbeittan tónlistarmann sem á álíka jafn mikið sameiginlegt með Tyru Banks og Halldór Ásgrímsson. Fædd og uppalin í Púertó Ríkó, byrjaði Zayra ferilinn í hæfileikakeppnum, söngleikjum og ýmsum unglingaböndum. Hún setti tónlistina á ís á meðan hún kláraði háskólann en hófst aftur handa þegar hún flutti til Dallas, Texas þar sem hún gerði samning við Brando Records. Plata hennar Ruleta var á rómönskum nótum og í kjölfarið fór hún í tónleikaferðalag um Vesturströndina og Púertó Ríkó.
www.rockstar.msn.com/
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka