90% samþykktu verkfallsaðgerðir

Verkfallsaðgerðirnar hefjast eftir viku.
Verkfallsaðgerðirnar hefjast eftir viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verkfallsaðgerðir félagsfólks í Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu og Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) sem starfa hjá Isavia voru samþykktar af 89,87% þeirra sem greiddu atkvæði.

3,8% sögðu nei og 6,33% tóku ekki afstöðu, en atkvæðagreiðslunni lauk klukkan 13 í dag.

Ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann gildir frá kl. 16 fimmtudaginn 9. maí ásamt tímabundnum og tímasettum vinnustöðvunum, að því er segir í tilkynningu frá Sameyki.

Fyrirkomulag aðgerðanna:

  • „Frá kl. 16:00 fimmtudaginn 9. maí 2024 hefst ótímabundið þjálfunarbann. Þjálfunarbann tekur til félagsfólks Sameykis sem starfar hjá Isavia ohf. sem leiðbeinendur og vottaðir leiðbeinendur á gólfi.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, föstudaginn 10. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 08:00-12:00, föstudaginn 10. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir farþegaflutningum á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, fimmtudaginn 16. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, föstudaginn 17. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 08:00-12:00, föstudaginn 17. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir farþegaflutningum á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.
  • Á tímabilinu frá kl. 04:00-08:00, mánudaginn 20. maí 2024, mun starfsfólk sem sinnir öryggisleit á Keflavíkurflugvelli leggja niður störf sín.”
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert