Íslensk matarveisla í Rock Star: Supernova

Magni og félagar hans í í þættinum Rock Star: Supernova …
Magni og félagar hans í í þættinum Rock Star: Supernova munu fá alvöru íslenskan mat a morgun. mynd/Matthías A. Ingimarsson

Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson er nú á leiðinni til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem hann mun hitta Magna Ásgeirsson og félaga hans í raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova. Tilgangurinn með ferðinni er að elda alvöru íslenskan mat handa rokkurunum á morgun þegar þátturinn verður tekin upp.

„Ég á að reiða fram íslenska veislu fyrir Magna og félaga,“ segir Völundur þegar Fréttavefur Morgunblaðsins náði tali af honum. Hann bætir því við að ákvörðunin um þetta hafi verið tekin hratt, en hann var á leiðinni út á land að steggja félaga sinn þegar honum var skyndilega snúið við.

Völundur tekur mikið af hráefnum með sér út en félagar hans í matreiðslugeiranum í Bandaríkjunum munu aðstoða hann með þau hráefni sem upp á vantar. „Ég komst að því að Magni er farinn að sakna grænu baunanna mjög mikið, þannig að ég tók með mér grænar baunir. Svo er maður náttúrulega með skyr, lambakjöt o.fl.“ segir Völundur.

Aðspurður segir Völundur hugmyndina hafa komið frá Ferðamálaráði Íslands í Bandaríkjunum (Icelandic Tourist Board - North America). Hann segir ekkert öruggt hvað varðar að sjálf veislan og grænu baunirnar muni sjást í sjónvarpinu. „Þau vildu sýna stuðning og senda kokk á staðinn. Það þýðir ekkert minna þegar kóngurinn er kominn í lokþáttinn,“ segir hann

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson