Bleikt er ekki liturinn hennar Viktoríu

Viktoría á tískusýningu í París fyrr í vikunni.
Viktoría á tískusýningu í París fyrr í vikunni. Reuters

Fregnir herma að Viktoría Beckham hafi harðneitað að fara að fyrirmælum Elísabetar Hurley um að klæðast að indverskum hætti í væntanlegu brúðkaupi Elísabetar.

Viktoría hreykir sér af tískuvitund sinni og var mjög brugðið þegar hún fékk boðskortið frá Elísabetu þar sem allar konur voru beðnar að klæðast hefðbundnum, bleikum sarí. Hefur Viktoría heitið því að virða þessa beiðni að vettugi.

Breska blaðið Daily Star hafði eftir heimildamanni: "Hún er fyrirmynd í tískuheiminum, það eru hennar ær og kýr, og bleikt er einfaldlega ekki liturinn hennar."

Elísabet og unnusti hennar, indverski kaupsýslujöfurinn Arun Nayer, ganga væntanlega í það heilaga í mars. Fyrst verður haldin hefðbundin, ensk athöfn í Cotswolds, og síðan indversk athöfn í Mumbai.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg