Kaupþing heldur tónleika í tilefni af afmæli

Bubbi Morthens mun m.a. koma fram á tónleikunum á Laugardalsvelli.
Bubbi Morthens mun m.a. koma fram á tónleikunum á Laugardalsvelli. mbl.is/Eggert

Kaupþing fagnar 25 ára afmæli um þessar mundir og stendur fyrir tónleikum á Laugardalsvelli föstudagskvöldið 17. ágúst. Meðal listamanna sem þar munu koma fram eru Bubbi Morthens, Stuðmenn, SSSÓL, Björgvin Halldórsson, Garðar Thor Cortes, Todmobile, Nylon og strákasöngsveitin Luxor sem kemur fram í fyrsta skipti. Veislustjóri verður Páll Óskar Hjálmtýsson.

Fram kemur í tilkynningu frá Kaupþingi, að hljóð og ljósabúnaður verði sá umfangsmesti sem settur hafi verið upp í Laugardal. Risaskjáir hafi verið sér fluttir inn til landsins til að varpa myndrænum þætti tónleikanna sem víðast um Laugardalinn. Sérstakt færanlegt gólf verður flutt inn frá Wembley leikvanginum í Bretlandi til að hlífa grasinu í Laugardal.

Tónleikarnir verða einnig sýndir í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og hefst útsendingin strax að loknu Kastljósi og stendur til klukkan 23.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson