„Við erum að fara í áheyrnarprufur 2. september á Nordica og þær verða teknar upp fyrir sjónvarp," segir Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, um leitina að stúlku til að fylla í skarð Emilíu í söngflokknum Nylon. Óvíst er á hvaða sjónvarpsstöð þátturinn verður sýndur.
„Við erum ennþá í viðræðum við Skjá einn, Stöð 2 og Sirkus," segir Einar. „Við erum á síðustu metrunum. Þjóðin má náttúrlega ekki missa af þessu gullna tækifæri til að kynnast nýjum kafla í sögu Nylon-flokksins - það væri illt að taka það af henni. Þetta er bara á mjög viðkvæmu stigi, eins og maður segir."
Nánar í Blaðinu í dag.