París uppgefin á karlmönnum?

París Hilton á Sundance-hátíðinni 20. janúar. stækka

París Hilton á Sundance-hátíðinni 20. janúar. AP

París Hilton sást koma út af næturklúbbi í Los Angeles í fyrrakvöld í fylgd konu sem ekki hefur verið nafngreind. Staðurinn heitir The Falcon Club og er vinsæll meðal lesbía. París, sem var með brúna hárkollu, og konan dularfulla leiddust hönd í hönd.

Hefur þetta kveikt þann orðróm að París hafi gefist upp á karlmönnum.

Haft var eftir gesti á klúbbnum að París hafi skemmt sér konunglega ásamt ónafngreindu konunni. „Þær dönsuðu saman og héldu þétt um hvor aðra þegar þær fóru. París hvíslaði að konunni og hún hló þegar þær gengu út og héldust í hendur.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem París sést vera innileg við aðra konu, og hún hefur áður farið á The Falcon Club. Nú er því ennfremur haldið fram að Britney Spears hafi hótað að afhjúpa samkynhneigð Parísar með því að birta myndir af Parísi í „vafasömum stellingum“ með vinkonu Britneyjar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, 1 Fólk - fréttir — Fleiri fréttir

Bæði jómfrú og trúlofuð

Noemi Letizia með mynd af ítalska forsætisráðherranum.
12.5.2009 Noemi Letizia, 18 ára gömul stúlka, sem komst í heimsfréttirnar fyrir skömmu þegar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti í afmælið hennar, segist í viðhafnarviðtali í ítalska vikublaðinu Chi, bæði vera hrein mey og trúlofuð. Meira »

Texti í tímans straumi

Hallgrímur Helgason.
12.5.2009 Skáldsagan Rokland, eftir Hallgrím Helgason, er nú komin út á sænsku í þýðingu John Swedenmark. Gagnrýnandi blaðsins Dagens Nyheder fjallar um bókina í dag og fer um hana lofsamlegum orðum. Hann segir jafnframt, að bókin Draumalandið, eftir Andra Snæ Magnason, komi upp í hugann við lestur Roklands: báðar hafi bækurnar komið út í miðju íslenska góðærinu og hafi hvor með sínum hætti spáð fyrir um atburði síðasta hausts. Meira »

Peter Gabriel fær Polarverðlaunin

Peter Gabriel.
12.5.2009 Tilkynnt var í morgun, að tónlistarmennirnir Peter Gabriel og José Antonio Abreu hljóti sænsku Polarverðlaunin í ár. Um er að ræða tónlistarverðlaun, sem Stikkan Andersson stofnaði til árið 1989. Meira »

Trekkarar troðfylltu bíóhúsin

Leikararnir Chris Pine og Zachary Quinto í hlutverkum sínum í nýju Star Trek myndinni.
12.5.2009 Ævintýramyndin Star Trek var langmest sótta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina og jafnframt sú tekjuhæsta. Rétt tæplega 5.000 manns skelltu sér á myndina sem skilaði rúmum 4,5 milljónum í kassann. Meira »

finnur.is