Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy gekk að eiga heitmey sína Cörlu Bruni í Elysee-höll í París í dag. Sky fréttastofan hefur þetta eftir frönskum heimildum en talsmaður skrifstofu forsetans vildi ekki tjá sig um fréttina.
Það hafa áður borist fregnir af brúðkaupi hjónaleysanna en þær hafa ekki fengist staðfestar.
Bruni er fyrrum fyrirsæta sem snéri sér að poppsöng og hafa þau Sarkozy verið par síðan í haust.