Melóna, sem ræktuð var í norðurhluta Japans, seldist á jafnvirði tæprar hálfrar milljónar króna á uppboði í landinu. Mun þetta vera hæsta verð, sem greitt hefur verið fyrir þennan svalandi og sæta ávöxt.
Um var að ræða melónu af fyrstu uppskeru sumarsins og sérfræðingar segja, að bragðið sé óviðjafnanlegt.