Grímuhátíðin áfallalaus

Diskógellur og -gæjar Hollywood-gengið lét sig ekki vanta á Grímuhátíðina …
Diskógellur og -gæjar Hollywood-gengið lét sig ekki vanta á Grímuhátíðina og sýndi glæsileg diskótilþrif í viðeigandi glansgöllum

Grímuverðlaunin  voru afhent sjötta sinni í fyrrakvöld, á föstudeginum 13. og því ljóst að skipuleggjendur hátíðarinnar eru ekki hjátrúarfullir. Veitt voru verðlaun í sextán flokkum sviðslista auk áhorfenda- og heiðursverðlauna.

Lítið bar á óhöppum á hátíðinni nema þá helst í byrjun hennar þegar upphafsatriði klikkaði eilítið hjá snyrtilega klæddum kynnum hátíðarinnar, leikurunum Jóhannesi Hauki Jóhannessyni og Guðjón Davíð Karlssyni, Jóa og Góa. Tókst þeim þó að komast vel frá sínu á endanum með tilheyrandi sprelli og gamanmálum sem jafnan fylgja verðlaunaafhendingum.

Einn af hápunktum kvöldsins var flutningur á allsérstöku friðarlagi þeirra félaga á fjölda tungumála sem hefði getað verið framlag til Evróvisjónsöngvakeppninnar. Fyndnasta atriðið, að mati þess sem hér skrifar, var endurgerð Jóa og Góa að dansatriði úr kvikmyndinni Dirty Dancing/ Í djörfum dansi, þar sem þeir beittu einföldum tæknibrellum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson