Christian Bale ekki ákærður

Christian Bale kemur til frumsýningar myndarinnar um Leðurblökumanninn í Lundúnum …
Christian Bale kemur til frumsýningar myndarinnar um Leðurblökumanninn í Lundúnum í júlí. Reuters

Breski leikarinn Christian Bale verður ekki ákærður fyrir meinta líkamsárás að sögn saksóknara í Bretlandi.  Bale var sakaður um að hafa ráðist á móður sína og systur á Dorchesterhótelinu í Lundúnum 21. júlí.

Að sögn saksóknara eru ekki nægar sannannir fyrir þeim ásökunum og því verði málið látið falla niður. 

Mæðgurnar kærðu Bale til lögreglu og sögðu að hann hefði ráðist á þær daginn áður en nýja myndin um Leðurblökumanninn, The Dark Knight, var frumsýnd í Lundúnum en Bale fer með aðalhlutverk í myndinni.

Hann hefur neitað ásökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson