Undanfarna daga hefur verið dreift á netið litlum youtube
myndböndum þar sem að helstu stjörnur íslenska tónlistariðnaðarins taka þátt
í smá sprelli til að hita upp fyrir íslenska útgáfu MTV-hátíðarinnar.
Verðlaunaafhendingu fyrir Monitor-nöglina.
Verðlaunaafhendingunni fylgir mikill
gleðskapur á fimmtudagskvöldið 11. september á Apótekinu þar sem boðsgestir úr
bransanum munu sýna sig og sjá aðra.
Teitið ber upp á eins árs afmæli
þessa höfuðrits íslenskrar dægurmenningar, að því er segir í tilkynningu.