Íslensk stjórnvöld, ásamt nokkrum fyrirtækjum og athafnamönnum, ráku veitingahús í London á sjöunda áratugnum í því skyni að auka sölu á íslenskum matvælum í Bretlandi. Iceland Food Center nefndist veitingahúsið og var ætlað sem almenn landkynning.
Til stendur að gera heimildarmynd um verkefnið en kostnaður við það var gríðarlegur enda ekkert til sparað. Gerður var 14 ára húsaleigusamningur, innréttingar voru sérsmíðaðar og allt starfsfólk íslenskt.