Hrár Tiger á kynlífsmyndbandi?

Tiger Woods virðist ekki af baki dottinn þrátt fyrir meiriháttar klúður í einkalífinu og greinilegt að hressa á upp á ímynd hans í fjölmiðlum, ef marka má nýjustu forsíðu tímaritsins Vanity Fair. Þar sést Tiger ber að ofan, með húfu á höfði, að lyfta handlóðum.

 Myndina tók Annie Leibovitz. Á forsíðunni stendur: Tiger. Hrár. Áður óséðar ljósmyndir eftir Annie Leibovitz. Myndirnar mun hún hafa tekið árið 2006, að því er fram kemur á vefnum msnbc.com.

En þar með er ekki öll sagan sögð af Tiger því slúðurfréttavefurinn TMZ færir fréttir af því að erótíska kvikmyndafyrirtækið Vivid hafi fengið tilboð frá ónefndri konu sem segist hafa undir höndum kynlífsmyndband með kylfingnum. Myndbandið á að hafa verið tekið fyrir tveim árum. Yfirmaður hjá Vivid segist hafa séð 30 sekúndna brot úr myndbandinu en hefur þó ekki staðfest að Woods sé þar á ferð.

Lögmenn Woods hafa hótað öllum þeim lögsóknum sem birta nektarmyndir eða -myndbönd af Woods.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg