8.000 miðar á 20 mínútum!

Hera Björk verður fulltrúi Íslands í Noregi. stækka

Hera Björk verður fulltrúi Íslands í Noregi. Eggert Jóhannesson

Lausir miðar á úrslitakeppni Eurovision-söngvakeppninnar í Telenor Arena í Bærum þann 29. maí næstkomandi voru bókstaflega rifnir út í morgun. Sala á8.000 lausum miðum hófst klukkkan 9 að norskum tíma og síðasti miðinn seldist kl. 9.20 eða 20 mínútum eftir að salan hófst.

Aðgöngumiðarnir á úrslitin kostuðu frá 800 norskum krónum og upp í 1.600 NKR eða frá um 17 þúsund íslenskum krónum og upp í rúmlega 34 þúsund krónur. Dýrustu miðarnir seldust fyrst.

Í tónleikahöllinni verður pláss fyrir 18.000 gesti. Áhugamannaklúbbum höfðu verið tryggðir 1.800 miðar að því er norskir fjölmiðlar greina frá. Það á að tryggja góða stemmningu í salnum.

Alls taka 39 þjóðir þátt í undanúrslitum og úrslitakeppninni og fá þær samtals um 1.200 miða sem ýmist eru ætlaðir boðsgestum eða verða afhentir gegn greiðslu. Miðað er við að hver þátttökuþjóð fái 15 frímiða og rétt til að kaupa 15 miða til viðbótar.

Aðstanendur keppninnar í Noregi segja mikinn áhuga á henni í Þýskalandi. Einnig varð vart mikils áhuga frá Dönum og Svíum. Enn munu vera fáanlegir miðar á lokaæfingu úrslitakeppninnar og á tónleika undanúrslitakeppna. Miðarnir á þær keppnir kosta frá 300 og upp í 600 norskar krónur, eða frá tæplega 6.500 íslenskum krónum og upp í tæp 13.000 ÍKR. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

„Óbærilegt álag“

03:28 Andlát bandarísku söngkonunnar Whitney Houston hafði áhrif á alla heimsbyggðina. Meðal þeirra sem tjáðu sig um það var Simon Cowell við CNN fréttastofuna. Hann sagði álagið óbærilegt á stjörnur sem Houston, og að hún hefði kynnst röngum mönnum með þeim afleiðingum sem fylgdu. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjón-keppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

finnur.is