Stuttmynd Barða Guðmundssonar, Mamma veit hvað hún syngur, fékk áhorfendaverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Bilbao um síðustu helgi.
Í fyrra var hún valin besta stuttmyndin á Hamborg International Lesbian and Gay Film Festival og hlaut áhorfendaverðlaun á Madrid Gay and Lesbian Film Festival. Helga Braga Jónsdóttir leikur í henni móður sem reynir að koma í veg fyrir að sonur hennar flytji að heiman.