Nafn Ásdísar Ránar misnotað

Ásdís Rán.
Ásdís Rán. mbl.is/Golli

Fyrirsætan Ásdís Rán varar við því á vef sínum að einhver óprúttinn tölvuþrjótur að misnota nafn hennar á netinu og eru það einkum stúlkur og fyrirsætur sem hafa orðið fyrir barðinu á þrjótnum. Fær hann stúlkur til að senda sér nektarmyndir og sýna sér brjóst og aðra líkamshluta með vefmyndavél.

„Ég vil vara fólk við, aðallega þá stelpur og módel, að það er einhver óprúttinn tölvuþrjótur að misnota nafn mitt illilega á internetinu. Hann er búinn að gera þetta lengi og ég heyri alltaf annað slagið af honum en mér hefur ekki tekist að hafa upp á honum ennþá. Ég hins vegar er búinn að ná að láta loka einhverjum reikningum sem hann hefur notað á Facebook og fleiri spjallvefjum. Núna notar hann mest Skype með mínu nafni sem lítið er hægt að gera í.

Hann notar nafnið mitt, myndir og allar réttar upplýsingar og basically veit allt um mig, svo það er erfitt að þekkja að þetta sé ekki ég. Samkvæmt heimildum mínum er hann búinn að plata margar stúlkur síðustu mánuði til að senda sér nektarmyndir, láta þær sýna sér í gegnum webcam brjóstin og aðra líkamsparta og spila allskonar dirty leiki. Hann er að lofa þeim myndatökum fyrir Playboy og önnur karlablöð og þykist þurfa að sjá hvernig þær líta út áður. Ef þær fatta að þetta er ekki ég að lokum, þá hótar þeim að gera myndirnar opinberar, senda manninum þeirra eða eitthvað álíka.

Ég hef persónulega ekki verið að senda neinum ókunnugum skilaboð í gegnum Skype, e-mail eða annað. Ég er ekki að adda neinum sjálf eða gefa nein gylliboð nema þá í gegnum opinbera reikninga eða e-mail sem hægt er að sjá að tilheyra IceModels eða mér. Einungis stelpur hafa bara haft samband við mig hingað til en ég reikna alveg með að hann sé að leika sér með einhverja stráka líka.

Til að gefa ykkur dæmi um hvað hann er fær, þá náði hann að plata eina bestu vinkonu mína frekar illa og hún hélt því fram að hún væri að tala við mig á Skype í nokkur skipti. Þar á meðal sat hún á nærfötunum og talaði um persónulega hluti. Slatti af stelpum hafa haft samband til að athuga hvort ég hafi verið að bjóða þeim hitt og þetta og margar hafa sýnt honum allt en þær sem hafa samband eru aðeins fáar af þeim sem hann er að misnota. Mér finnst þetta rosalega leiðinlegt og ég er alveg í rusli þar sem ég er búin að fá frekar grófar sögur undanfarið frá stelpum sem líður hræðilega yfir að hafa látið plata sig svona. Þetta eru stelpur alls staðar úr heiminum," skrifar Ásdís Rán á vef sinn á Pressunni.

Vefur Ásdísar Ránar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson