„Ég hafði geðveikar áhyggjur af því að hún myndi skamma mig fyrir að tala lélega íslensku“, segir Vala Grand en í nýjum þætti á Mbl sjónvarpi fer hún í viðtal á útvarpi Sögu. Nýlega gekk viðtalsbútur á netinu þar sem Arnþrúður neitar erlendri konu að tala ensku í viðtalsþætti sínum á þeim forsendum að þá var dagur íslenskrar tungu.
Í nýja þættinum fylgjumst við einnig með Völu þegar hún
fer á stefnumót við sjálfa sig og á trúnó með vinkonum sínum úr Keflavík.