Hvernig er vitað að þessi kona átti þetta barn?

Ekki spurning um hvort heldur hvenær það verður mansalsmál á …
Ekki spurning um hvort heldur hvenær það verður mansalsmál á Íslandi vegna þess að ekkert verklag er til um skráningu barna í kerfið sem fæðast án aðkomu fagfólks. AFP

Þrjú börn hafa fæðst án aðkomu fagfólks á Íslandi það sem af er ári og voru þau sex á síðasta ári. Þetta herma heimildir mbl.is, en talan gæti þó verið hærri þar sem dæmi eru um að foreldrar kjósi að skrá börn sín ekki inn í kerfið og þar með eru engar heimildir til um tilvist þeirra. 

Vinsældir fæðinga án aðkomu fagfólks hafa farið vaxandi hér á landi á undanförnum árum og hafa ljósmæður ýmsar áhyggjur af þróuninni. Er það meðal annars vegna þess að ekkert verklag er til um skráningu þessara barna og því telja ljósmæður sem mbl.is hefur rætt við einungis tímaspursmál hvenær mansalsmál af þessu tagi kemur upp. Eins hafa þær áhyggjur af heilsu móður og barns í fæðingunni sjálfri og spyrja sig hver réttur barns til heilbrigðisþjónustu sé í aðstæðum sem þessum. 

Um er að ræða svokallað „freebirth“ sem felst í því að foreldrar kjósa að fæða barn sitt í eigin umhverfi án aðkomu ljósmæðra eða annars heilbrigðisstarfsfólks. Ekkert íslenskt heiti hefur rutt sér til rúms í þessu samhengi og því verður hér verður fjallað um fæðingu án aðkomu fagfólks. 

„Hvernig vitið þið að þessi kona hafi átt þetta barn?“

Fæðingar án aðkomu fagfólks fóru að verða vinsælar hér á landi í kringum árið 2019. Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingarteymis Landspítalans, lýsir því að upp frá þeim tíma hafi feður tekið að hringja á fæðingardeildina með bón um aðstoð við að skrá nýfædd börn inn í kerfið. 

Ljóst er að fjöldamargar konur hafa í gegnum tíðina fætt barn án aðkomu fagfólks, en í seinni tíð hefur það helst verið vegna þess að konur ná ekki á fæðingadeildina í tæka tíð, eða af öðrum sértækum ástæðum. Hulda segir starfsfólk spítalans fyrst um sinn hafa staðið í þeirri trú að um þess konar tilvik hafi verið að ræða og því orðið við bón þessara feðra. 

„Ég held að það hafi verið félagsráðgjafarnir okkar sem hugsuðu þetta skrefinu lengra og spurðu „bíddu hvernig vitið þið að þessi kona hafi átt þetta barn?“,“ segir Hulda og útskýrir að á þeim tíma hafi legið ljóst fyrir að einhverjar þeirra kvenna sem kjósa að fara þessa leið, kjósi jafnframt að sækja ekki mæðravernd á meðgöngu.

Í slíkum tilfellum hafi ljósmæður ekki í höndunum neinar upplýsingar um meðgöngu móður og þar með verði flóknara að sannreyna að barnið sé í raun barn þeirra sem gera tilkall til þess.  

„Þetta þýðir þó ekki að spítalinn neiti að skrá þessar konur inn í kerfið, hann hefur bara breiðar skyldur og þarf að horfa til fleiri sjónarmiða. Því kalla ljósmæður eftir því að verklagið verði skýrt,“ segir Hulda. 

Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingarteymis Landspítalans. Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, yfirljósmóðir á …
Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingarteymis Landspítalans. Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, yfirljósmóðir á Landspítalanum og Helga Sól Ólafsdóttir, leiðtogi félagsráðgjafa hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Samsett mynd/Þorkell Þorkelsson/Ómar Óskarsson

Heilbrigðiskerfið milli steins og sleggju 

„Jafnvel þó að kona hafi verið í mæðravernd, hringi inn og segist hafa verið að fæða barn, þá getur þú ekki verið alveg viss um að hún hafi verið að eignast nákvæmlega það barn sem er verið að sækjast eftir að skrá,“ segir Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir, yfirljósmóðir á Landspítalanum.

„Var einhver annar sem átti það og gaf þeim það? Fóru þau erlendis og sóttu það? Þetta eru hlutir sem við vitum ekkert um,“ segir Hulda til að undirstrika áhyggjur ljósmæðra. 

Í kjölfarið segja þær að tekin hafi verið ákvörðun um að fæðingardeild Landspítalans myndi ekki þjónusta þessar beiðnir lengur og í dag sé því engin augljós leið til að skrá umrædd börn inn í kerfið. 

mbl.is hefur þó heimildir fyrir því að heimaljósmæður hafi í einhverjum tilfellum farið heim til þessara fjölskyldna skömmu eftir fæðingu og skráð nýfædd börn inn í kerfið. Er það þó ekki gert nema að undangenginni skoðun á móður og barni. 

„Ég held að heilbrigðiskerfið sé dálítið milli steins og sleggju af því að það er í raun ekkert verklag,“ segir Guðlaug þegar blaðamaður spyr hvernig skrá eigi börn inn í kerfið sem fæðast án aðkomu fagfólks. 

„Það þótti bara svo fjarlægt að þetta myndi gerast að það var enginn sem hugsaði þennan möguleika,” segir Hulda og bætir við síðastliðið ár hafi verið unnið að því að leita leiða við að finna aðrar leiðir til að skrá umrædd börn, en samkvæmt reglugerð er það þannig að tilkynningar um fæðingu barna skulu berast frá heilbrigðisstofnunum eða sjálfstætt starfandi ljósmæðrum og þurfa viðkomandi heilbrigðisstarfsmenn strangt til tekið að vera viðstaddir fæðinguna til að mega tilkynna um fæðingu barns. 

Rétt er þó að taka fram að ekkert er í íslenskum lögum eða reglugerðum sem meinar konu að fæða barn án aðkomu fagfólks. Á sama hátt er ekkert í íslenskum lögum sem segir til um hvernig skrá eigi börn inn í kerfið sem fæðast án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. 

„Ef það er gat í kerfinu þá er það notað“

Fleiri ljósmæður og heilbrigðisstarfsmenn hafa lýst yfir áhyggjum sínum af þróuninni í samtali við mbl.is. Ein þeirra er Helga Sól Ólafsdóttir, leiðtogi félagsráðgjafa hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði um tíma á kvennadeild Landspítalans og hefur meðal annars tekið þátt í að leita annarra leiða til að skrá börn inn í kerfið sem fæðast án aðkomu fagfólks. 

Helga deilir að mörgu leiti sömu áhyggjum og Hulda og Guðlaug hafa gert hér að undan og veltir sérstaklega fyrir sér hvernig megi tryggja að tiltekin kona hafi fætt tiltekið barn. 

„Ef það er gat í kerfinu þá er það notað og þarna erum við komin með leið fyrir staðgöngumæðrun algjörlega án eftirlits. Þrátt fyrir að maður búist ekki við því.“

Bíða eftir því að það verði mansalsmál

Af samtölum blaðamanns við ljósmæður og heilbrigðisstarfsmenn má heyra að áhyggjur þeirra af þróun fæðinga án aðkomu fagfólks eru þungar. Ein þeirra sagði til að mynda „ég bíð bara eftir því að það verði mansalsmál. Það er bara spurning hvenær það verður hér á Íslandi, ekki hvort“.

Eins og fram kemur hér á undan hefur verið unnið að því síðastliðið árið að leita leiða til að skrá umrædd börn í kerfið. Sú vinna hófst í kjölfar þess að Þjóðskrá vakti athygli á málinu við innviða-, heilbrigðis- og dómsmálaráðuneytið og er ólokið.

Eyrún Magnúsdóttir, lögfræðingur hjá Þjóðskrá, segir Þjóðskrá hafa vakið athygli á málinu í ljósi hlutverks stofnunarinnar sem er að skrá börn inn í kerfið eftir gögnum sem berast frá heilbrigðisstofnunum eða sjálfstætt starfandi ljósmæðrum. 

„Ef við fáum engin gögn um fæðingu barns, annaðhvort frá lækni eða ljósmóður, þá er okkur ekki unnt að skrá barnið því við höfum enga forsendu til að meta hvort umrædd kona eigi viðkomandi barn,“ segir Eyrún til að undirstrika mikilvægi þess að verklag í kringum skráningar barna sem fæðast án aðkomu fagfólks verði skýrt. 

Nánar verður fjallað um áhættuna sem getur fylgt því að fæða barn án aðkomu fagfólks og rétt barnsins til heilbrigðisþjónustu á mbl.is síðar í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert