Harry prins tábrotnaði

Harry prins hefur undirbúið sig undir leiðangurinn með því að …
Harry prins hefur undirbúið sig undir leiðangurinn með því að dvelja í miklum kulda, en búast má við allt að 40 stiga frosti á Suðurpólnum. DARREN STAPLES

Harry bretaprins varð fyrir því óhappi að tábrjóta sig aðeins nokkrum vikum áður en hann átti að leggja af stað í leiðangur á Suðurpólinn.

Harry er búinn að leggja á sig mikla vinnu við að undirbúa leiðangurinn, en fyrirhugað er að leggja af stað um miðjan næsta mánuð. Prinsinn ætlar að ganga 208 mílur ásamt hópi fyrrverandi hermanna sem slasast hafa í Afganistan og Írak. Áætlað er að gangan taki 16 daga. Engin ákvörðun liggur fyrir um hvort Harry neyðist til að hætta við þátttöku í ferðinni.

Leiðangursmenn komu til Íslands til að æfa sig og gengu þá m.a. á skíðum á Langjökli. Harry dvaldi við æfingar á jöklinum í sumar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir